Á besta stað í Vesturbænum er björt og falleg íbúð. Um er að ræða 150 fermetra íbúð með þremur svefnherbergjum og tveimur samliggjandi stofum.
Í eldhúsinu er að finna gullfallega upprunalega innréttingu en húsið er byggt árið 1961. Hjónaherbergið er málað í grænbláum lit sem nýtur sín vel í björtu rýminu. Útgengt er í sólskála úr svefnherberginu.
Á veggjunum í stofunni er einstaklega fallegur bleikur litur sem gefur henni líf og passar vel við húsgögnin.