Tinna gengur til liðs við FÓLK

Tinna Gunnarsdóttir.
Tinna Gunnarsdóttir.

Tinna Gunnarsdóttir, vöruhönnuður og prófessor við hönnunardeild Listaháskóla Íslands,
og hönnunarmerkið FÓLK Reykjavík hafa gert með sér samstarfssamning um útgáfu
hönnunar Tinnu alþjóðlega. Tinna er fjórði íslenski hönnuðurinn sem FÓLK starfar með en
fyrirtækið hefur undanfarin ár byggt upp framleiðsluþekkingu og markaðs- og söluinnviði
alþjóðlega á þróun og dreifingu íslenskrar hönnunar.

Hver er Tinna Gunnarsdóttir? Hún er prófessor við hönnunardeild Listaháskóla Íslands. Hún er með meistaragráðu í iðnhönnun frá Domus Academy á Ítalíu, listrannsóknarmeistaragráðu frá Brighton og stundar nú doktorsnám í menningarfræði við Háskóla Íslands. Hún hefur starfað sem fagstjóri og prófessor við vöruhönnun við Listaháskóla Íslands í áratug. Tinna hefur setið í fjölda stjórna og dómnefnda, hún hefur skrifað greinar og bókakafla, ritstýrt og átt sæti í ritnefndum. Tinna hefur hlotið fjölda viðurkenninga og styrkja fyrir verk sín og verk eftir hana eru í eigu íslenskra og erlendra lista- og hönnunarsafna. Tinna hefur tekið þátt í fjölda hönnunarsýninga, hér heima og erlendis.

Tinna nýtir hönnunarrannsóknir og nytjahluti hversdagsins til að skoða umhverfi sitt, hvort sem það varðar einkarými heimilisins eða náttúrulegt samhengi. Hún setur efni og tækni í
óvæntar aðstæður og skapar þannig fersk sjónarhorn, útvíkkaða upplifun, skemmtilega afbakað samhengi. Íslenskt landslag hefur haft stór áhrif á meðvitund hennar og rýmisskilning en þeim miðlar hún í gegnum efnislæga hluti.

„Það er mikill fengur fyrir okkur hjá FÓLKi að hefja samstarf við Tinnu. Tinna hefur byggt
upp afar áhugaverðan feril á sviði hönnunar yfir lengri tíma en kemur þó stöðugt með
ferska nálgun og sýn á efnisheiminn. Við hlökkum til að vinna með henni að frekari þróun
á íslenskri hönnun á næstunni,“ segir Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi og listrænn stjórnandi FÓLKS.  

Ragna Sara Jónsdóttir og Tinna Gunnarsdóttir.
Ragna Sara Jónsdóttir og Tinna Gunnarsdóttir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál