Veislueldhús með öllu í Kópavogi

Allar innréttingar í eldhúsinu eru hvítar að undanskilinni eyjunni og …
Allar innréttingar í eldhúsinu eru hvítar að undanskilinni eyjunni og eru þær frá HTH-innréttingum. mbl.is/Vignir Már Garðarsson

Sólveig Andrea Jónsdóttir innanhússarkitekt hannaði einstaklega gott vinnueldhús í Kópavogi fyrir fimm manna fjölskyldu sem er mikið fyrir að halda góðar veislur. 

„Við rifum allt út úr gamla eldhúsinu, tókum niður veggi og færðum þvottahús frá þessu svæði annað,“ segir Sólveig sem veit fátt skemmtilegra en að hanna stór eldhús fyrir fjölskyldur sem kunna að halda góð boð.

Þegar hún fór í verkefnið hafði hún þarfir fjölskyldunnar í huga.

„Þau vildu stórt barborð til að sitja við í eldhúsinu og lögðu áherslu á skilvirkni og hagkvæmni.

Þau vildu hafa tvennt af öllu. Svo ég hannaði eldhús með tveimur ísskápum, tveimur uppþvottavélum og tveimur ofnum.

Fjölskyldan vildi ekki hafa efri skápa í eldhúsinu en var að leita eftir ákveðnum léttleika, sem mér finnst ég hafa náð fram á skemmtilegan hátt.“

Sólveig Andrea Jónsdóttir innanhússarkitekt bjó til huggulegt eldhús fyrir fjölskyldu …
Sólveig Andrea Jónsdóttir innanhússarkitekt bjó til huggulegt eldhús fyrir fjölskyldu í Kópavogi.

Lærði fagið sitt á Ítalíu

Eyjan er að mati Sólveigar með meiri karakter þar sem ákveðið var að nota svartan við í hana.

„Allar innréttingar í eldhúsinu eru hvítar að undanskilinni eyjunni og eru þær frá HTH-innréttingum. Viðarhillan á veggnum er sérsmíðuð hjá Efnissölunni. Borðplatan er frá Steinprýði og er úr kvartsi. Blöndunartækin eru einstaklega falleg og eru þau frá Ísleifi Jónssyni og svo til að setja smá „bling“-útlit á eldhúsið valdi ég að nota gylltar höldur frá HTH-innréttingum.“

Hönnun Sólveigar ber merki þess að hún lærði fag sitt á Ítalíu, nánar tiltekið í ISAD Design School í Mílanó.

„Það hefur án efa áhrif á það sem ég geri, en ég veit fátt skemmtilegra en að hanna húsnæði með þarfir fólksins sem ég vinn fyrir í huga. Fjölskyldan í Kópavogi er sem dæmi mjög opið og skemmtilegt fólk sem heldur mikið af matarboðum. Mig langaði að búa til eldhús með það í huga.“

Viðarhillan á veggnum er sérsmíðuð hjá Efnissölunni og setur mikinn …
Viðarhillan á veggnum er sérsmíðuð hjá Efnissölunni og setur mikinn sjarma á eldhúsið. mbl.is/Vignir Már Garðarsson

Lýsingin gerir mikið fyrir eldhúsið

„Síðan eru hjónin þannig að þau njóta þess að eiga rómantískar stundir saman og því ákvað ég að setja lítinn bekk undir glugga í eldhúsinu þar sem þau gætu setið hvort í sínu horni með gott rauðvínsglas að lesa bók með huggulegt útsýni og í þessu fallega rými þar sem þau geta notið návistar við alla þá sem koma inn í eldhúsið eða ganga um svæðið.“

Hillurnar undir eldhúsbekknum eru aukageymslur fyrir matarstell eða hluti úr eldhúsinu. Eins er hægt að geyma góðar bækur þar og hluti sem fjölskyldan notar á bekknum.

Barstólarnir inni í eldhúsinu eru stílhreinir stólar úr Epal.

Ljósin sem notuð eru í eldhúsinu eru úr Lýsingu og …
Ljósin sem notuð eru í eldhúsinu eru úr Lýsingu og hönnun. Veggljósið er aðallega hugsað fyrir stemninguna. mbl.is/Vignir Már Garðarsson

Stór búrskápur er í eldhúsinnréttingunni þar sem ísskáparnir tveir eru staðsettir og inni í þeim skápum er falleg lýsing.

„Ég ákvað að taka aðeins niður loftið til að poppa aðeins upp eldhúsið. Eins er lýsingin hugsuð sem góð vinnulýsing. Ljósin sem notuð eru í eldhúsinu eru úr Lýsingu og hönnun og þótt veggljósið sé aðallega fyrir stemninguna þá lýsir það á hluta af borði þar sem hægt er að hafa fallega ávexti í skál svo dæmi séu tekin,“ segir Sólveig.

Það eru eflaust margir sem vilja gera eitthvað fallegt fyrir eldhúsið sitt um páskana. Sólveig segir fallega málningu geta gert mikið fyrir eldhús. „Það má alltaf skipta um borðplötur og mála innréttingar. Ég sá æðislegar skáphurðir í Haf Store nýverið. Möguleikarnir eru margir þótt ég mæli alltaf með því að fá sér fagmann í stærri verkefni til að létta fólki verkið.“

Blöndunartækin eru einstaklega falleg og eru þau frá Ísleifi Jónssyni.
Blöndunartækin eru einstaklega falleg og eru þau frá Ísleifi Jónssyni. mbl.is/Vignir Már Garðarsson
Það er fallegt að hafa blóm inn í eldhúsinu.
Það er fallegt að hafa blóm inn í eldhúsinu. mbl.is/Vignir Már Garðarsson
Bekkurinn undir glugganum í eldhúsinu býr til svæði þar sem …
Bekkurinn undir glugganum í eldhúsinu býr til svæði þar sem hægt er að njóta stundarinnar í eldhúsinu. mbl.is/Vignir Már Garðarsson
Gylltu höldurnar í eldhúsinu eru fallegar og fást hjá HTH-innréttingum.
Gylltu höldurnar í eldhúsinu eru fallegar og fást hjá HTH-innréttingum. mbl.is/Vignir Már Garðarsson
Púðarnir á bekknum setja huggulegan svip á rýmið.
Púðarnir á bekknum setja huggulegan svip á rýmið. mbl.is/Vignir Már Garðarsson
Fjölskyldan vildi hafa tvennt af öllu í eldhúsinu.
Fjölskyldan vildi hafa tvennt af öllu í eldhúsinu. mbl.is/Vignir Már Garðarsson
Svartir stólar við svarta innréttingu á eyjunni.
Svartir stólar við svarta innréttingu á eyjunni. mbl.is/Vignir Már Garðarsson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál