Aldrei verið hrædd við að taka áhættu

Nýtt útlit á höfuðstöðvum Advania Ísland við Guðrúnartún hefur vakið mikla athygli eftir endurnýjun sem er í höndum Fröken Fix hönnunarstúdíós. Fyrsta fasa er nú lokið og lofar góðu fyrir framhaldið. Sesselja Thorberg hönnuður hefur rekið stúdíóið í tæp 11 ár og segist rétt að byrja.

Hefur innanhússhönnun fyrir stóra vinnustaði breyst mikið síðastliðið ár?

„Það er sumt sem hefur breyst mikið og annað minna, en nálgunin fyrir vinnustað eins og Advania er samt sem áður sérstök – hvernig sem litið er á verkefnið. Fyrirtækið er leiðandi á sínum markaði og verður því að hugsa út fyrir kassann. Það sem hefur verið algjörlega frábært er að mitt samstarfsfólk þarna innandyra skilur algjörlega ferlið „að sjá lausnina á undan vandamálinu“. Við í teyminu vorum löngu byrjuð að þróa saman lausnir fyrir starfsfólk til að vinna á fjölbreyttan hátt, í raun áður en Covid kom upp. Við vorum byrjuð í hugmyndaferli sem í raun styrktist því lengra sem leið á ferlið.“

Hvernig kom það til að þið hófuð þetta ferli?

„Í lok árs 2019 höfðu þeir samband við nokkra hönnuði og arkitekta til þess að setja saman hugsanlegt „consept“. Úr varð að mín nálgun á verkefnið var eitthvað sem féll að þeirra framtíðarsýn. Ég hef aldrei verið hrædd við að taka áhættu í efnis- og litavali og trúi því að réttar áherslur í því séu eflandi fyrir vinnustaðamenningu.

Verkið er þó gríðarlega yfirgripsmikið og verður tekið í nokkrum fösum yfir næstu ár en hugmyndin er komin og grunnvinnan búin fyrir allar hæðirnar. Hönnun fyrir anddyri og móttöku, markaðsdeild og nýja NOC-deild ásamt tengigangi er lokið og hóf ég verkumsjón á þeim fasa í haust sem lauk nú um áramótin.“

Jákvætt fólk með sterka vinnuvitund

Er eitthvað sem þú ert sérstaklega ánægð með í þessu verkefni?

„Það er mjög margt sem ég er ánægð með. Til þess að skapa svona fjölþætt verkefni sem krefst mikillar útfærslu og hugmyndavinnu er ekki leiðinlegt að fá að vinna með jákvæðu fólki með sterka vinnuvitund til framtíðar. Svo ekki sé minnst á alla snillingana, verktakana og aðstoðarfólkið, án þeirra væri ekkert af þessu til nema bara í hausnum á mér.

Þegar ég til dæmis sagðist vilja nýta ganga í fundarrými sem væru alveg opin sagði fólkið hjá Advania já! Þegar ég sagðist vilja hafa Virtual Reality-svæði í móttökunni sagði það já! og þegar ég vildi sprengja upp borðastærðir og svæðaskipta frekar deildum eftir því hvað starfsmenn væru að gera á mismunandi tíma dags þá sögðu þau líka já,“ segir Sesselja.

„Litir og efni skipta þarna miklu máli. Ég nota gula og fjólubláa til dæmis til að örva starfsfólkið á stærri svæðum en dempaðri liti í „fókusrýmum“ og það virkar. Ég er þá ekki að segja endilega að allar skrifstofur þurfi að vera gular og fjólubláar heldur að andstæður virka örvandi. Advania er með gríðarlega fjölbreytta starfsemi á alls konar sviðum og því galið að halda uppi stórum sölum með 160 sentimetra borðum í löngum röðum fyrir slíkan fjölbreytileika. Með starfsrýmum sem halda utan um alla eins og til dæmis með hópavinnusvæðum, fókusrýmum, hvíldarrýmum, lokuðum og opnum fundarrýmum er markmiðinu náð ásamt því að leggja áherslu á gleðina og mannlega þáttinn.“

Hagræða í uppbyggingu skrifstofunnar

Hvernig er þá helsta breytingin hjá þér í skrifstofuhönnun núna og fyrir Covid?

„Ég legg áherslu á að hanna skrifstofur út frá vinnu mannauðsins – allt annað á að koma ofan á. Svo dæmi sé tekið fer nú fram miklu meira af vinnu í gegnum fjarfundarbúnað jafnvel þótt núna séu hömlurnar mun minni vegna Covid. Fólk skilur að þú þarft ekki endilega að senda starfsfólk út á land eða til útlanda, einungis til að fara á einn fund. En á móti er þá ekki hægt að ætlast til þess að sami starfsmaður sé að hvísla í fjarskiptabúnaðinn innan um samstarfsmenn sína úti á miðju gólfi.

Einnig má minnast á það að fólk á jú auðveldara með að vinna heiman frá sér líka. Með því má hagræða í uppbyggingu skrifstofunnar. Á sama tíma er hægt að leggja áherslu á svæði sem tengja starfsmenn félagslega og að sameiginlegu svæðin þeirra sem ætluð eru í hópavinnu ýti undir góð samskipti og gleði. Því það verður jú að vera gaman að mæta í vinnuna líka.“

Hvað er næst á döfinni hjá ykkur í Fröken Fix?

„Við erum með allskonar verkefni í gangi fyrir utan Advania. Ísbúð fyrir Kjörís í nýjum miðbæjarkjarna Selfoss ásamt tveimur heimilisverkefnum sem verða unnin í sumar. Einnig erum við að leggja lokahönd á stórt einbýli í samstarfi við Tvíhorf arkitekta þar sem við hönnum allt innanhúss – allt gert í mikilli gleði.“

Hvert væri draumaverkefnið hjá Fröken Fix?

„Eftir síðustu verk, fyrir Advania og Biskupsstofu, vil ég gjarnan halda áfram á sömu braut. Að vinna með fyrirtækjum með stóra drauma og mikinn metnað, sem treysta okkar framtíðarsýn, er draumur sem ég vil halda áfram að lifa í.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál