End­ur­bæt­ur á baðher­berg­inu kostuðu 800 þúsund

Valgerður Árnadóttir er sérfræðingur hjá Eflingu stéttarfélagi og formaður Samtaka …
Valgerður Árnadóttir er sérfræðingur hjá Eflingu stéttarfélagi og formaður Samtaka grænkera á Íslandi, mbl.is/Kristinn Magnússon

Valgerður Árnadóttir og Karl Fannar Sævarsson búa í fallegri íbúð við Klambratún sem þau keyptu fyrir rúmu ári. Þau gerðu hlutina sjálf og notuðu meðal annars YouTube til að finna út hvernig best væri að flísaleggja baðið. Hún vann sem innkaupastjóri áður og kostuðu endurbætur á baðherberginu 800 þúsund krónur. 

Valgerður Árnadóttir starfar hjá Eflingu stéttarfélagi og er formaður Samtaka grænkera á Íslandi, og Karl Fannar Sævarsson er húsgagnasmiður. Þau eru duglegir einstaklingar með margt á sinni könnu og um þessar mundir fer tími Valgerðar að stórum hluta í að undirbúa kosningabaráttu fyrir alþingiskosningar þar sem hún er í framboði fyrir Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður.

„Ég er einnig að taka á mig aukin störf fyrir borgarstjórnarflokk Pírata sem annar varaborgarfulltrúi. Svo er ég að vona að ég geti hugað betur að hreyfingu og heilsu eftir kórónuveiruslenið. Við eigum hund og kött og hefur hundurinn verið að koma mér út að hlaupa. Í sumar stefnum við að því að fara í krefjandi fjallgöngur líka.“

Fyrirsætan á heimilinu kemur sér vel fyrir í eldhúsinu.
Fyrirsætan á heimilinu kemur sér vel fyrir í eldhúsinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Gott að búa með húsgagnasmiði

Valgerðar og Karl Fannar keyptu íbúðina sem stendur við Klambratún fyrir rúmu ári.

„Við gerðum íbúðina alla upp. Skiptum um innréttingar og gólfefni sem voru orðin mjög lúin. Við brutum einnig niður tvo veggi til að breyta herbergi aftur í borðstofu. Karl Fannar er húsgagnasmiður að mennt og mjög handlaginn og svo eru pabbi hans og stjúpi einnig ansi lunknir svo við gerðum íbúðina að mestu upp sjálf með hjálp fjölskyldunnar. Við réðum þó pípara og rafvirkja í þau verk og vinur okkar sem er smiður hjálpaði okkur að steypa gólf og veggi. Það tók okkur tæpa þrjá mánuði að gera íbúðina upp á kórónuveirutímum. Það var þolinmæðisvinna að þurfa að fara í röð í þrjú mismunandi sóttvarnahólf í sömu byggingarvöruverslun og eiga kannski eina til tvær verslanir aðrar eftir. Mér líður svona eftir á eins og ég hafi verið mestmegnis að skutlast og í röðum á meðan karlarnir unnu í íbúðinni. Ég sá til þess að þeir væru vel nærðir og var farin að kunna helstu byggingarvöruverslanir höfuborgarsvæðisins utan að. En ég flotaði líka gólf, pússaði, sparslaði og málaði heilmikið. Við erum mjög ánægð með útkomuna og þótt við höfum ákveðið að gera þetta aldrei aftur er nýtt áhugamál hjá mér að fylgjast með fasteignasíðum og láta mig dreyma um að breyta eignum eftir eigin höfði.“

Flísarnar í eldhúsinu eru Subway flísar. Innréttingin er úr Ikea.
Flísarnar í eldhúsinu eru Subway flísar. Innréttingin er úr Ikea. mbl.is/Kristinn Magnússon

Finnst hefðbundnar baðinnréttingar óspennandi

Hvað gerðuð þið fyrir baðherbergið?

„Ég var með ákveðnar hugmyndir um hvað ég vildi. Baðherbergið átti að vera bæði stílhreint og þægilegt ásamt því að vera auðvelt að þrífa. Ég sankaði að mér myndum í Pinterest-albúm og vann út frá því. Mér hafa alltaf fundist hefðbundnar baðinnréttingar frekar óspennandi og þegar ég sá baðherbergi með antík-kommóðu undir vaskinn var ég ákveðin í að finna fallega kommóðu í stað innréttingar. Ég fann eftir mikla leit tekk-kommóðu í réttri stærð á Blandi og lét senda mér hana í bæinn frá Akureyri. Ég pússaði hana og lakkaði og sagaði úr henni fyrir vaski. Svo var ég svo heppin að eiga antíkspegil með vængjum sem passaði fullkomlega yfir vaskinn. Við Kalli vorum sammála um að fá okkur hvítar subway-flísar á veggina og svört blöndunartæki og féllum svo alveg fyrir dökkum gólfflísum með marokkósku mynstri. Kalli hafði aldrei flísalagt áður og lærði það af kennslumyndböndum á Youtube. Hann vandaði sig líka mjög mikið og það tók hann um þrjár vikur að flísaleggja baðherbergið. Enda mjög vel gert hjá honum.

Ég var heillengi að finna ljós á baðið sem mér líkaði og endaði á að kaupa svarta útilukt sem mér fannst passa vel við blöndunartækin og flísarnar. Ljósið er smávegis hrátt og var mjög ódýrt. Ég vann sem innkaupastjóri í mörg ár og fór því auðvitað í allar verslanir og tók út verð og gæði áður en verslað var. Það eina á baðinu sem ekki var á afslætti eða ódýrt eru gólfflísarnar en við fengum svo óvænt staðgreiðsluafslátt af þeim líka svo við eyddum alls um 800 þúsund í að gera upp baðherbergið.

Veggflísarnar og handklæðaofninn fengum við í Húsasmiðjunni, gólfflísar í Flísabúðinni, handklæðahilluna fengum við í IKEA og sturtuglerið er frá Íspan.“

Flísalögnin inn á baði er falleg. Notast var við YouTube.
Flísalögnin inn á baði er falleg. Notast var við YouTube. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fer með ljótu handklæðin í sund

Skipta handklæði og baðmottur miklu máli?

„Ég viðurkenni að inn á bað fara einungis handklæði í gráum tónum og hvítu. Handklæðin okkar eru góð blanda úr Rúmfatalagernum og Scintilla. Skræpóttu ljótu handklæðin eru notuð í sundferðir og fyrir hundinn og fá ekki að hanga á fína baðinu þegar fólk sér til. Það þarf ekki baðmottu þegar er hiti í gólfum. Við þurrkum upp bleytuna jafnóðum.“

Það er mikilvægt að gera húsnæði að sínu að mati Valgerðar.

„Ef það sem fyrir er er vel farið, praktískt og fallegt þá má vinna með það. Gamlar innréttingar og panell geta verið mjög sjarmerandi og ég myndi sennilega aldrei rífa niður nýja innréttingu vegna þess eins að mér líkaði hún ekki. Draumaíbúðin mín er með hátt til lofts, bogadregnum gluggum og flúruðum listum. Ólíklegt er að ég muni nokkurn tíma eignast hana á Íslandi. Ég er ekki hrifin af kössunum sem verið er að byggja núna með öllu glænýju og ferköntuðu.“

Hvernig lýsir þú stílnum á heimilinu þínu?

„Hann er hlýlegur þar sem við erum með antíkhúsgögn í bland við ný. Innréttingarnar eru nýjar en þó klassískar og við leikum okkur með liti á veggjum og húsmunum. Svo erum við með mikið af plöntum, bókum og listaverkum. Baðherbergið er langsamlega mínímalískasta herbergi heimilisins.“

Áttu þér draumahúsgagn?

„Mig hefur dreymt um að eignast Arco-gólflampa og Eames-stól. En væri líka ánægð með hengirúm og garðskála.“

Baðskápurinn er antík.
Baðskápurinn er antík. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þykir ekkert eins leiðinlegt og að ryksuga

Hvað keyptir þú þér síðast heim?

„Við féllum fyrir sinnepsgulum hægindastól í Húsgagnahöllinni og þegar mamma bauðst til að gefa okkur hann í innflutningsgjöf slógum við til. Annars keyptum við róbótaryksugu nýverið en að ryksuga er það allra leiðinlegasta sem ég geri og við eigum tvo fótboltastráka sem bera með sér grasið inn, loðinn hund og kött. Rykmaurinn er því nýi besti vinur minn.“

Valgerður segir að sama hvernig innréttingarnar eru á heimilinu skipti mestu máli að heimilisfólkinu líði vel heima.

„Við Kalli losuðum okkur við svo mikið af óþarfa drasli þegar við fluttum en héldum í það sem okkur þótti vænst um og veitti okkur gleði. Það þarf líka ekki að kosta svo mikið að gera upp íbúð. Það er hægt að læra ótrúlegustu hluti á YouTube og gera sjálf en ég mæli þó alltaf með því að fá fagmenn í rafmagnið og pípurnar. Það margborgar sig.“

Stílhreint og fallegt með litum.
Stílhreint og fallegt með litum. mbl.is/Kristinn Magnússon
Listaverkin gera mikið fyrir borðstofuna.
Listaverkin gera mikið fyrir borðstofuna. mbl.is/Kristinn Magnússon
Bækur eru ómissandi heima.
Bækur eru ómissandi heima. mbl.is/Kristinn Magnússon
Uppáhaldsstóllinn fer vel með bláa litnum í stofunni.
Uppáhaldsstóllinn fer vel með bláa litnum í stofunni. mbl.is/Kristinn Magnússon
Viður í bland við himneskan bláan lit.
Viður í bland við himneskan bláan lit. mbl.is/Kristinn Magnússon
Litir gera mikið fyrir svefnherbergið.
Litir gera mikið fyrir svefnherbergið. mbl.is/Kristinn Magnússon
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál