Opnuðu geggjað sýningarrými á Grandanum

Elísabet Alma Svendsen og Helga Kjerúlf opnuðu Listaval að Hólmaslóð …
Elísabet Alma Svendsen og Helga Kjerúlf opnuðu Listaval að Hólmaslóð 6 um helgina. Sigga Björg Sigurðardóttir gerði listaverkið á gafl hússins sem þær stöllur standa við. Ljósmynd/Rainy Siagian

Listval, nýtt sýningarrými opnaði á Hólmaslóð 6, laugardaginn 26. júní en það eru þær Elísabet Alma Svendsen og Helga Björg Kjerúlf sem standa á bakvið Listval. Listval hefur undanfarin tvö ár verið leiðandi í myndlistarráðgjöf fyrir heimili og fyrirtæki.

Rýmið á Hólmaslóð verður aðsetur Listvals þar sem fólk getur komið og skoðað fjölbreytta myndlist og fengið persónulega ráðgjöf við val á verkum. Markmið Listvals er að stuðla að meiri sýnileika myndlistar og gera fólki auðveldara fyrir að fjárfesta í myndlist.

Í tilefni opnunar rýmisins verða til sýnis verk eftir yfir þrjátíu samtímalistamenn, má þar nefna Shoplifter / Hrafnhildur Arnardóttur, Huldu Vilhjálmsdóttur, Áslaugu Írisi, Steingrím Gauta, Harald Jónsson, Bjarka Bragason og fleiri. Þá gerði Sigga Björg Sigurðardóttir veggverk á gafl hússins í tilefni opnunarinnar.

Samhliða opnun var ný heimasíða Listvals sett í loftið, www.listval.is, en þar eru verk listamanna einnig til sýnis og sölu.

Ljósmynd/Rainy Siagian
Ljósmynd/Rainy Siagian
Ljósmynd/Rainy Siagian
Ljósmynd/Rainy Siagian
Ljósmynd/Rainy Siagian
Ljósmynd/Rainy Siagian
Ljósmynd/Rainy Siagian
Ljósmynd/Rainy Siagian
Ljósmynd/Rainy Siagian
Ljósmynd/Rainy Siagian
Ljósmynd/Rainy Siagian
Ljósmynd/Rainy Siagian
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál