Við Haukshóla í Reykjavík stendur 404 fm einbýlishús sem byggt var 1975. Húsið er að mestu með upprunalegum innréttingum sem voru hæstmóðins þegar húsið var byggt.
Húsgögnin sem prýða heimilið eru einstök. Í stofunni er brúnbleikur flauelssófi með rókókósniði og við hann er útskorið viðarborð. Falleg málverk prýða stofuna ásamt vönduðum mottum. Í stofunni eru stórir og miklir gluggar sem státa af útsýni yfir Reykjavík í öllu sínu veldi.
Ef þig hefur alltaf dreymt um að eiga einbýlishús með bæsuðum panilveggjum þá er þetta húsið fyrir þig.
Í húsinu eru fjögur baðherbergi, fimm svefnherbergi, bílskúr, garður og annað sem hentar vel fyrir stóra fjölskyldu.