Við Fiskislóð í Reykjavík er að finna einstaka loft-íbúð í anda New York-borgar. Eignin er 107 fm að stærð og hefur verið innréttuð á afar glæsilegan máta.
Mikil lofthæð gefur eigninni einstakan karakter, en lofthæðin er allt að fimm metrar þar sem hún er mest. Stórir gluggar til suðausturs og suðvesturs gefa íbúðinni mikla birtu og glæsibrag ásamt flotuðum og lökkuðum gólfum.
Í alrýminu eru eldhús, borðstofa og stofa samliggjandi, en birtan og lofthæðin gera rýmið einstakt og húsgögn og skrautmunir njóta sín. Í borðstofunni má sjá hvítan SMEG-ísskáp sem ljær rýminu skemmtilegan karakter.
Frá alrýminu er gengið upp á milliloft með sannkallaðri lúxushjónasvítu. Fremst í rýminu stendur afar fallegt frístandandi baðkar fyrir framan stóran spegil, en innst er hlýlegt svefnrými. Til móts við rúmið eru stórir gluggar sem snúa inn í alrýmið á neðri hæðinni og setja punktinn yfir i-ið.