Myndlistarkonan og hönnuðurinn Linda Jóhannsdóttir og eiginmaður hennar, Rúnar Karl Kristjánsson bifvélavirki, hafa sett glæsilega hæð sína við Barmahlíð í Reykjavík á sölu. Linda og Rúnar festu kaup á eigninni haustið 2019 og var hún þá nærri upprunaleg, en í kjölfarið hófust miklar framkvæmdir og var hún tekin í gegn frá a til ö.
Eignin sem um ræðir er staðsett í fjölbýlishúsi sem reist var árið 1948, en hún telur 138 fm og státar af þremur svefnherbergjum og einu baðherbergi.
Linda og Rúnar eru miklir fagurkerar og hafa innréttað íbúðina á afar fallegan og sjarmerandi máta. Ljúf og fögur litapalletta flæðir í gegnum eignina sem er með rómantísku yfirbragði.
Eldhús, stofa og borðstofa eru samliggjandi í rúmgóðu og björtu alrými. Hvít stílhrein eldhúsinnrétting prýðir eldhúsið ásamt fallegu ljósi frá Frama sem hannað var af Krøyer Sætter Lassen árið 2019.
Linda sagði frá framkvæmdunum í viðtali sem birtist í Heimili og hönnun, sérblaði Morgunblaðsins, fyrr á þessu ári.
„Við keyptum eignina haustið 2019. Hún var nú kannski ekkert augnayndi en við sáum fullt af möguleikum sem seldu okkur hana. Það þurfti að taka hana alla í gegn, en íbúðin var það illa farin að það var eiginlega ekki hægt að byrja smátt og því fluttum við ekki inn fyrr en búið var að rífa allt út, laga rafmagn, mála, parketleggja o.s.frv. Þar sem við höfum gaman af því að laga og fegra fasteignir var þetta frábært verkefni fyrir okkur,“ sagði hún í viðtalinu.