Bara þvæla að nota ediksblandað vatn

Margrét Sigfúsdóttir skólastýra Hússtjórnarskólans kann öll hreingerningartirxin í bókinni.
Margrét Sigfúsdóttir skólastýra Hússtjórnarskólans kann öll hreingerningartirxin í bókinni. mbl.is/Eggert

Margrét Sigfúsdóttir, skólastýra Hússtjórnarskólans í Reykjavík, er með ráð undir rifi hverju. Hún mælir með því að fólk byrji tímanlega að huga að jólahreingerningunni í stað þess að eyða aðventunni í stress og streitu. En hvernig ætti fólk, sem vill eiga streitufría aðventu, að haga þrifunum? 

„Fyrst og fremst að byrja tímanlega. Það er til dæmis mjög algengt að fólk taki niður gardínur og þrífi glugga fyrir jólin. Þetta má gera í lok nóvember,“ segir Margrét, sem mælir með því að rúður séu þrifnar með edikblönduðu vatni og örtrefjaklút. „Og fólk verður bara að passa að þurrka vel með þurri örtrefjatusku á eftir svo það komi ekki neinir taumar. Þegar þetta er tilbúið er stór hluti búinn.“

Margrét mælir einnig með því að strjúka af rykföllnum gólflistum ekki seinna en viku fyrir jól. „Og ef þú ert með uppistandandi kristal eða einhverja skrautmuni þværðu þá og hefur glansandi. Svo er mjög gott, viku eða 10 dögum fyrir jól, að bera mublubón eða húsgagnaáburð á póleruð húsgögn. Þetta er ekki það sama og tekkolía, en fólk þekkir oft ekki muninn á þessu tvennu. Húsgagnaáburður inniheldur vax og er til að bera á lakkaða muni. Ef tekkolía er hins vegar borin á lakkaða muni verður allt skýjað og ómögulegt. Fólk verður síðan að passa að þurrka mjög vel af með þurri tusku á eftir, hvort sem er yfir póleruð húsgögn eða tekk. Þegar búið er að þessu er síðan hægt að þurrka létt yfir fyrir aðfangadag. Þá er þetta tilbúið. Allt tekur þetta tíma og því betra að gera þetta tímanlega. Þá verður maður ekki ómögulegur og þreyttur á síðustu stundu.“

Margrét segir máluð húsgögn í tísku um þessar mundir, en þrifum á þeim er öðruvísi háttað en á tekkmunum eða stíflökkuðum mublum.

„Margar ungar stúlkur í netheimum eru að leiðbeina fólki að nota edikblandað vatn á allt, og sumar nota líka spritt, sem er endemis þvæla. Maður þarf ekki að nota spritt nema til að sótthreinsa, en það getur líka leyst upp málningu þótt það sé blandað með vatni. Best er að vinda tusku upp úr mildu sápuvatni, þurrka yfir og þurrka svo með þurrum klút á eftir. Örtrefjaklútar geta verið of grófir á svona fleti en gott er að nota bleiuklúta. Þeir hafa dugað vel hingað til og eru mjög góðir,“ bætir Margrét við.

Gott að byrja tímanlega

Margrét segir að gott sé að hefja jólahreingerninguna um mánaðamót nóvember-desember. Þá sé hægt að þrífa eldhús og baðherbergi vel og vandlega, og þrífa svo létt þegar nær dregur jólum.

„Þá getur maður skúrað út í öll hornin. Svo er gott að taka niður eldhúsgardínur, þvo utan af öllum skápum og gera eldhúsið fínt og huggulegt. Gott er að þrífa bakaraofninn vel og vandlega og þvo bæði gler í eldhúsinu og gardínurnar. Sumir setja líka upp jólagardínur. Það er svo skemmtilegt að geta síðan bara bakað og haft það huggulegt í hreinu eldhúsi fyrir jólin,“ segir Margrét.

„Fyrir jólin þarf náttúrlega að skipta á rúmum, en ekki endilega á Þorláksmessu eða aðfangadag. Gott er að viðra rúmföt og sængur, henda þeim bara út á svalir eða á grind og leyfa þeim að viðrast þar í hörkugaddi. Þá kemur svo góð lykt af þeim. Síðan er gott að ryksuga dýnuna vel, en það skiptir máli að gera þetta tímalega fyrir jólin. Það má ekki skemma jólaboðin og jólahátíðina með því að vera svo úrvinda að maður standi ekki í lappirnar,“ segir Margrét, sem trúir því að maður eigi frekar að njóta jólanna en að drepa sig á stressi.

„Jólin koma þótt það sé ekki allt í röð og reglu, þótt það sé nú skemmtilegra. Fólk getur auðveldlega lent í því að það nær ekki að klára, en þá á það gera það þannig að það njóti þess. Þá bara fer maður með kattaþvotti yfir allt saman. Jólatréð verður komið upp, pakkar undir því og það sér enginn hvort það hafi verið skúrað út í hornin eða ekki.“

Graflaxinn tilbúinn í september

Margrét lumar ekki einungis á góðum þrifaráðum, því hún kann líka ýmislegt fyrir sér í eldhúsinu. Hún segir að þar sé hægt að spara mikinn tíma með góðum undirbúningi.

„Maður getur til dæmis verið búinn að búa til ísinn löngu fyrir jól og graflax þess vegna í september og geyma svo í frosti. Það er svo þægilegt. Ég geri hann alltaf tímanlega og tek hann síðan út þremur klukkutímum áður en ég ætla að skera hann. Þá er aðeins frost í honum og svo þægilegt að skera hann þunnt. Þeir sem ætla að vera með brúnaðar kartöflur, en vilja ekki forsoðnar, geta soðið þær og afhýtt um morguninn. Svo brúnað þær skömmu áður en matur er borinn á borð. Einnig má sjóða rauðkálið einum til tveimur dögum fyrir jól og hita síðan upp. Það er ekkert að því,“ segir Margrét að lokum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál