Ertu búin að velja litaþema fyrir jólin eða vantar þig innblástur hvernig þú vilt hafa jólin í ár? Ef svo er þá ættir þú ekki að láta þig vanta á jólakvöld Húsgagnahallarinnar sem fram fer í kvöld og hefst kl. 19.00.
Beina útsendingin byrjar á slaginu 20.00 í kvöld og verður í beinni útsendingu á mbl.is. Eva Ruza sér um að skemmta gestum á jólakvöldinu og verður enginn svikinn af þeirri upplifun.
Dagskráin verður engu lík enda er Eva Ruza einstakt jólabarn sem kann að keyra upp stemningu eins og enginn sé morgundagurinn. Allar smávörur verða með 20% afslætti í kvöld og því ættu Jóakimar þessa lands að fagna ákaft.