Saga um drauma sem rætast - MYNDIR

Marsibil Sæmundardóttir, Ársæll Níelsson, Grétar Örn Eiríksson, Róslaug Agnarsdóttir og …
Marsibil Sæmundardóttir, Ársæll Níelsson, Grétar Örn Eiríksson, Róslaug Agnarsdóttir og Halldór Gunnar Pálsson. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Kvikmyndin Albatross var frumsýnd í gærkvöldi í Háskólabíó. Myndin fjallar um Tómas, sem er ástfanginn og ævintýragjarn borgarstrákur, sem stefnir að nýjum kafla í lífinu með Rakel kærustunni sinni. Hann eltir ástina út á land og fær vinnu á Golfvelli Bolungarvíkur yfir sumarið. Það renna á hann tvær grímur þegar hann kynnist skrautlegum samstarfsmönnum sínum (þeim Kidda og Finna) og ekki tekur betra við þegar hann hittir Kjartan, yfirgengilegan yfirmann þeirra. Stefnt er á að fá stórmót á völlinn yfir sumarið og því öllu tjaldað sem til er. Tómasi líst ekki beint á blikuna en hvað gerir maður ekki fyrir ástina. Hann ákveður að taka slaginn en sumarið tekur aðra stefnu þegar óvænt áföll dynja yfir.

Snævar S. Sölvason leikstýrir myndinni en hann ákvað að gera myndina þegar hann var hálfnaður með nám sitt við Kvikmyndaskóla Íslands. Í stað þess að finna sér enn eina sumarvinnuna ákvað hann að láta draum sinn rætast, búa til bíómynd. Hann byrjaði að skrifa handritið og að því loknu safnaði hann saman skemmtilegum 10 manna hópi af hæfileikaríku fólki.

„Þegar handritið var tilbúið rukum við af stað í undirbúningsvinnu og þaðan beint í tökur. Með góðri samstöðu og ósérhlífni hópsins auk aðstoðar velunnara tókst okkur að klára tökur í lok júlí 2013. Þar með er þó ekki öll sagan sögð því við tók eftirvinnsla myndarinnar. Það var ekki hlaupið að því að ganga frá henni enda kostnaðarsamt ferli og buddan orðin tóm,“ segir Snævar. Hann endaði á að fjármagna restina með Karolina fund.

Pálmi Gestsson og Birna Hjaltalín Pálmadóttir.
Pálmi Gestsson og Birna Hjaltalín Pálmadóttir. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson
Snævar S. Sölvason leikstjóri, Rannveig Jónsdóttir og Guðgeir Arngrímsson.
Snævar S. Sölvason leikstjóri, Rannveig Jónsdóttir og Guðgeir Arngrímsson. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson
Snævar Geirsson og Davíð Arnar Baldursson.
Snævar Geirsson og Davíð Arnar Baldursson. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson
Jón Sigurpálsson, Margret Gunnarsdóttir, Einar Tómasson og Ebba Áslaug Kristjánsdóttir.
Jón Sigurpálsson, Margret Gunnarsdóttir, Einar Tómasson og Ebba Áslaug Kristjánsdóttir. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson
Freydís Þrastardóttir söngkona og Bríet Ósk leikkona.
Freydís Þrastardóttir söngkona og Bríet Ósk leikkona. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson
Sigurður Þórðarson og Valgeir Skagfjörð.
Sigurður Þórðarson og Valgeir Skagfjörð. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson
Gísli Berg og Örn Pálsson.
Gísli Berg og Örn Pálsson. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson
Guðlaug Jakobsdóttir og Hilmar Oddsson.
Guðlaug Jakobsdóttir og Hilmar Oddsson. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson
Haukur Skúlason, Árni Mar, Bjarni Þór og Guðmundur Jóhann.
Haukur Skúlason, Árni Mar, Bjarni Þór og Guðmundur Jóhann. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson
Jimmy Salinas, Logi Ingimarss tökumaður og klippari og Þröstur Gunnlaugsson …
Jimmy Salinas, Logi Ingimarss tökumaður og klippari og Þröstur Gunnlaugsson Söring. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál