Indira Schauwecker og Eamonn Boreham, sem eru stórstjörnur í hágreiðsluheiminum, sýndu íslensku hárgreiðslufólki nýjustu trixin á Hard Rock á dögunum. Þau starfa fyrir label.m og sýndu Avant-Garde, Get the look og Fashion Fix.
„Það er mikil viðurkenning fyrir okkur að fá svona frábæra fagmenn til landsins og forréttindi fyrir hárgreiðslufólk að fá tækifæri til að sækja sér dýpri þekkingu og njóta innblástursins sem þau Indira og Eamonn færa okkur. Það er alls ekki auðvelt að fá þau til að heimasækja litla Ísland þar sem þau eru bókuð um allan heim langt fram í tímann. En þeim finnst við frábær og algjörlega elska að koma hingað,“ segir Baldur Rafn Gylfason eigandi bPro.