Íþróttafélagið Stjarnan er ekki bara gott í því að skora mörk heldur kann félagið að halda góð partí. Þorrablót Stjörnunnar var með glæsilegasta móti en það fór fram í gærkvöldi í TM höllinni.
Veislugestir gerðu fleira en að borða hausa af kindum, rófustöppu og súrmat því það var hlegið mikið sem kemur kannski ekki á óvart því Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikkona var veislustjóri. Svo komu Hrafnkell og Pálmar og keyrðu upp stuðið og svo tók Alpatross við keflinu með Sverri Bergmann sem söngvara og skemmti gestum fram á nótt.
Þorrablót Stjörnunnar nýtur svo mikilla vinsælda að fólk laumast úr öðrum bæjarfélögum til að taka þátt í gleðinni.