Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson og eiginkona hans Eliza Reid mættu á Grímuna í gær. Forsetahjónin voru hress og skemmtileg að vanda. Elísa Reid þótti bera af í einstaklega fallegum fatnaði eins og henni er einni lagið.
Hún var í stígvélum frá Halldóru og í buxum sem hún hafði keypt í Kanada. Margir tóku eftir bleika hálsmeninu hennar sem er íslensk hönnun eftir Toggu sem hún festi kaup á í Ráðhúsi Reykjavíkur á sýningunni Handverk og hönnun. Ljósa bolinn sem hún er í fékk hún í Sigurboganum.
Punkturinn yfir i-ið var svo fallegur bleikur jakki sem forsetafrúin keypti í verslun Rauða krossins.
Smartland heldur áfram að fylgjast með klæðaburði forsetafrúarinnar sem er einstakur að svo mörgu leyti. Hvergi í heiminum höfum við heyrt af forsetafrú nota tímabilsfatnað á þennan hátt á sama tíma og hún heillar land og þjóð með framkomu sinni, útliti og fegurð.