Það var ekki þverfótað fyrir vel klæddu fólki þegar útgáfu af Blæti 3 var fagnað á La Primavera. Boðið var upp á geggjað gin og tónik og sáu Sævar Markús og FM Belfast um tónlistina. Ritstjórar Blæti eru Erna Bergmann og Saga og sá Studio studio um að hanna nýtt útlit á blaðinu. Arnar Freyr Guðmundsson, Birna Geirfinnsdóttir og Chris Petter Spilde reka Studio studio.
Undirliggjandi þema þriðja tölublaðsins er framtíðin og er tímaritið 400 blaðsíður af tísku, hönnun og listum. Er tímaritið með sama sniði og fyrr, en hugað er að hverju smáatriði og mikil áhersla er lögð á fagurfræðilegt gildi ritsins með umhverfisvitund að leiðarljósi.
Eins og sjá má á myndunum var mikið fjör í teitinu.