Það var líf og fjör við Hverfisgötu í Reykjavík þegar verslunin Akkúrat var með opnunarteiti. Verslunin sérhæfir sig í fallegum gjöfum sem henta við öll tilefni. Elva Björk Barkardóttir eigandi Akkúrat lét gamlan draum rætast þegar hún opnaði fyrirtækið en hún er lögfræðingur að mennt. Í dag rekur hún fyrirtækið með Addý Hrafnsdóttur sem er líka lögfræðingur.
Eins og sést á myndunum var vel mætt í boðið og allir í essinu sínu.