Sex sambandsráð Kristen Bell

Dax Shepard og Kristen Bell.
Dax Shepard og Kristen Bell. mbl.is/AFP

Leikkonan Kristen Bell er búin að vera gift leikaranum Dax Shepard í fimm ár. Bell gaf sex góð hjónabandsráð á Valentínusardaginn. Ráðin eru ekki bara eitthvað sem Bell hefur lært af hjá sjálfri sér en hún viðurkenndi það í fyrra að hún og Shepard færu reglulega í hjónabandsráðgjöf. 

Bell fékk bréf frá manni sem bað um ráð til vinar síns sem var að fara gifta sig. Eftir að hún kláraði að skrifa niður ráðin áttaði hún sig á því að þetta væru lykilatriðin í hjónabandi hennar. „Þetta hefur virkað fyrir okkur hingað til,“ skrifaði Bell. 

1. „Varnarleysi elur af sér tengsl og nánd,“ sagði Bell og hvetur fólk til að vera berskjaldað í samböndum sínum. 

2. „Eftir tíu ár þegar dópamínið hefur minnkað mundu: Lífið er klikkað ferðalag. Það eru forréttindi að fara í gegnum það með maka,“ skrifaði Bell og minnti fólk á að vera þakklátt fyrir hvort annað. 

3. Bell hvetur fólk líka til þess að hvíla sig hvort á öðru, nauðsynlegur aðskilnaður geri hjónabandið betra. 

4. „Að elska einhvern þrátt fyrir gallana, mistökin eða persónuleikabresti er öflugasta ást sem þú getur gefið.“

5. „Fagnaðu því sem gerir hina manneskjuna hamingjusama,“ skrifaði Bell og hvetur fólk til að leyfa maka sínum að sinna áhugamálum sínum. 

6. „Verstu viss um að allir séu að gera sitt besta með því sem þeir hafa. Svo náðu þér í stærri tilfinningaverkfærakassa og lagaðu vandamálin.“

Kristen Bell veit eitt og annað um sambönd tveggja einstaklinga.
Kristen Bell veit eitt og annað um sambönd tveggja einstaklinga. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál