Sendir öllum sambandsslitakönnun

Svona líta spurningarnar út í sambandsslitakönnun Katie.
Svona líta spurningarnar út í sambandsslitakönnun Katie. skjáskot/Twitter

Skilur þú ekki af hverju samböndin þín endast ekki? Þá gæti verið sniðugt að nota aðferð sem kona að nafni Katie notar en hún sendir út sambandsslitakönnun þegar hún hættir í sambandi, sama hversu alvarlegt sambandið var. 

Kona að nafni Abby segist þekkja umrædda Katie og deildi hún spurningunum á Twitter. Líkt og nemendur leggja mat á kennslu kennara í lok annar í þeim tilgangi að kennari geti bætt sig getur Katie notað upplýsingarnar til þess að bæta sig í ástarlífinu. 

„Hvað er að Katie?“ „Hvað er að þér?“ „Á hvaða tímapunkti vissir þú að þetta myndi ekki ganga upp?“ „Hvað hefði Katie getað gert til þess að bæta þessa reynslu fyrir þig?“ Þetta eru meðal spurninga sem Katie spyr sína fyrrverandi. Hún býður fólki einnig að vera áfram í sambandi við hana og skilja eftir aðrar athugasemdir sem gagnast henni. 

Twitter-færslan hefur vakið mikla athygli á netinu og finnst fólki þetta almennt sniðugt. Hægt er að finna athugasemdir við færsluna þar sem konur lýsa áhuga sínum á því að taka þetta kerfi upp. 

Skjáskot/Twitter
Skjáskot/Twitter





mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál