„Karlinn vill ekki fara í sturtu“

Karlinn vill ekki fara í sturtu. Hvað skal gera?
Karlinn vill ekki fara í sturtu. Hvað skal gera? mbl.is/Colourbox

Þau eru mörg og misjöfn vandamálin sem lesendur Elle lenda í. Eiginkona nokkur á í vandræðum með eiginmann sinn sem vill ekki fara í sturtu og þrífa sig. Hún leitar ráða hjá ráðgjafa Elle, E. Jean

„Þetta er líklega ógeðslegasta spurning sem þú hefur fengið en svona er hún: Við eiginmaður minn höfum verið gift í átta ár, rekum fyrirtæki saman og erum góðir foreldrar. Hann er besti vinur minn og ég elska hann. En karlinn vill bara ekki fara í sturtu. Þetta hefur verið vandamál ...alltaf. Það er óþarfi að taka fram að við stundum nánast aldrei kynlíf. Mér líður eins og líf mitt sé að fljóta fram hjá mér. Fyrirtækinu okkar gengur vel, hann er frábær pabbi, en ó Guð, af hverju getur hann ekki gripið sápustykki og þvegið sér? Ég veit ekki hvað ég á að gera. Ég hef reynt milljón aðferðir til að fá hann til að fara í bað og hann segir bara „ég er að vinna í því.“ Er einhver von fyrir okkur? Kveðja ein leið og einmana við sjóinn.“

E. Jean líst ekkert á blikuna og gefur konunni góð ráð.

„Jiminn eini! „Milljón aðferðir“? Þá hlýtur þú að hafa prófað að vera slökkviliðskona og skolað af honum með garðslöngunni, er það ekki? Bundið hann við sturtuna með slæðum? Leikið kynæsandi hjúkrunarfræðing í búningi og gefið sjúklingnum bað?

Og hann neitar enn að fara í sturtu?

Maður sem vill ekki fara í sturtu til að fullnægja konunni sinni er óþokki. En maður sem stundar „nánast aldrei“ kynlíf af því hann getur ekki farið í sturtu er ekki latur eða að hefna sín. Heldur glímir hann við einhvern geðrænan kvilla. Ég vil ekki bæta á áhyggjur þínar, en ef þetta hefur verið vandamál alltaf þá er líklegt að greyið maðurinn sé drulluskítugur og fullur af sýkingum. Vegna heilsu barna ykkar og hamingju þinnar myndi ég fara með börnin á hótel og segjast ætla að vera þar þangað til hann samþykkir að fara til læknis. Það verður ekki auðvelt fyrir hann að breyta hegðun sinni og hann mun líklegast aldrei breytast í gaurinn í Old Spice-auglýsingunum. En hann gæti skánað til muna með aðstoð frá fagmanni.“

Myndir þú þola það ef maki þinn færi aldrei í …
Myndir þú þola það ef maki þinn færi aldrei í sturtu? Pexels
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál