Maður að nafni Dustin viðurkenndi að hjónaband hans við eiginkonu sína til 25 ára hafi styrkst til muna þegar hjónabandsráðgjafi ráðlagði konu hans að prófa að sofa hjá öðrum mönnum. Dustin deildi sögu sinni nýverið með hlustendum hlaðvarpsþáttarins Consenting Adults sem hann var gestur í.
Dustin segir þau hjónin hafa átt nokkuð gott samband í gegnum tíðina en kynlífið hafi þó tekið að dala með tímanum. Ákváðu þau að leita sér aðstoðar hjá hjónabandsráðgjafa sem ráðlagði þeim að gera róttækar breytingar á kynlífinu.
„Við höfðum ekki áttað okkur á því að ég gæti hafa verið að glíma við kynlífsfíkn á meðan konan mín barðist við sektarkennd gagnvart kynlífi vegna trúarlegs uppeldis sem hún hlaut,“ lýsti Dustin. „Það var ekki fyrr en ráðgjafinn okkar hvatti eiginkonu mína til að hugsa um kynlíf með frjálslegri hætti sem hlutirnir fóru að gerast,“ greindi hann frá.
Hjónabands- og kynlífsráðgjafinn hafði sett konunni fyrir verkefni að sögn Dustins. „Hún hafði skorað á konuna mína að fara á nektardansstað og sænga hjá öðrum mönnum,“ sagði hann. „Ég höndlaði þetta ekki vel í fyrstu,“ bætti hann við. Þegar tveir mánuðir voru liðnir og eiginkonan búin að vera með 10 mönnum utan hjónabandsins fóru þau að uppskera að hans sögn.
„Ég hefði aldrei getað séð þetta fyrir mér. Við erum ástfangnari en nokkru sinni fyrr. Við tjáum okkur meira hvort við annað, eigum miklu betri samtöl. Hún fór úr því að geta ekki talað um hlutina í að geta tjáð sig um þá og langanir sínar,“ sagði Dustin og minnist þessa tveggja mánaða óvenjulega tímabils með hlýhug – nokkuð sem hann bjóst aldrei við að gera, enda um heldur sérstaka ráðgjöf að ræða.