Lá meðvitundarlaus á gólfinu þegar löggan kom

Ellisif er nýjasti viðmælandinn í hlaðvarpinu Sterk saman.
Ellisif er nýjasti viðmælandinn í hlaðvarpinu Sterk saman.

Ellisif er fertug, fimm barna móðir sem á miklu betra og innihaldsríkara líf en hana hefði nokkurn tíma geta látið sig dreyma um. Hún er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Sterk saman.

Hún ólst upp við góðar aðstæður þar sem ekkert skorti, hvorki tilfinningalega né veraldlega.  Aftur á móti passaði Ellisif ekki inn í kassann sem skólakerfið vill setja alla inn í. Hún var ung greind með ADHD og seinna kom í ljós að hún væri á einhverfurófi, sem útskýrir vanda hennar með félagsleg samskipti til að mynda.

„Mér fannst ég hvergi passa inn, alveg sama hvar ég var en ég þráði að tilheyra,“ segir hún og bætir við að hún hafi verið furðulegur krakki.

Unglingsárin voru erfið en þá fann  Ellisif sig í hópi ungmenna sem farnir voru að fikta við neyslu vímuefna. 

„Það var í raun bara gjöf fyrir mig að byrja að drekka, allar hömlur fóru og ég drakk mjög illa. Ég var samt alin upp við það að passa mig á áfengi því það væri mikill alkóhólismi í minni fjölskyldu.“

Hún var ung þegar hún eignaðist tvíbura tíu vikum fyrir tímann. Tvíburarnir voru mikið veikir. 

„Ég er týpa sem ýti frá mér vanlíðan og klára verkefni sem þarf að klára. Ég og við vorum auðvitað mjög hrædd þegar þeir voru litlir og ég varð fljótt aftur ólétt. Þegar dóttir mín var níu mánaða fór ég í hjáveituaðgerð, orðin 150 kíló, ekkert búið að vinna í fíkninni og ég gat ekki borðað.“ Á einu og hálfu ári var allt komið í vaskinn. Hún var farin að drekka á hverju kvöldi og skildi svo í kjölfarið.

Ellisif var inn og út úr meðferðum. Í einni þeirra kynntist hún manni og stuttu síðar varð hún ólétt.

„Ég fatta að ég er ólétt þegar ég var komin 12 vikur og kona á kvennadeildinni kom mér inn á Vog. Það voru allir voða góðir við mig á þessari meðgöngu. Barnsfaðir minn aftur á móti fór að beita mig líkamlegu ofbeldi eftir að sonur okkar fæddist. Hann barði mig í stöppu þar sem voru blóðslettur í loftinu.“

Ellisif segist hafa verið í spennuhring eins og hún kallar það. Þegar ofbeldismaður stjórnar heimilislífinu og öllu með sveiflum, ofbeldi og svo koma góð tímabil inni á milli þar sem hann gaf gjafir og sýndi þolinmæði. Hún bjó í þessum spennuhring í nokkur ár. Svo eignaðist hún annað barn með manninum og stuttu eftir það féll hún. 

„Ég féll, sat ein fyrir framan sjónvarpið og drakk. Morguninn eftir hringdi ég í foreldra mína og lét sækja börnin mín og fór á fyllerí. Maðurinn minn var í mótorhjólasamtökum þar sem var mikið um drykkju, dóp, vopn, ofbeldi og allt mögulegt. Ég ætlaði bara á túr, fara svo í meðferð og verða aftur mamma en það gekk ekkert.“

Ofbeldið varð verra og verra en alltaf svaraði hún fyrir sig, hún talar um hvernig samviskubitið nagar hana enn þá.

„Eitt skiptið kom löggan heim og ég lá meðvitundarlaus á gólfinu og var með far eftir mótorhjólahæl á kinninni. Það voru nánast allar tennurnar í mér brotnar og ég man ekki eftir að hafa pælt í þessu. Það var ekki fyrr en hann henti mér fram af annarri hæð og ég hljóp á nærbuxunum til nágrannans þar sem búið var að berja mig í klessu, rífa upp hársvörðinn og með brotin rifbein.“

Þessi hrottalega árás og tilraun til manndráps var kærð til lögreglu, en felld niður.

Ellisif kláraði meðferð á Krýsuvík og var edrú í eitt og hálft ár en féll eftir það og ákvað að láta barnavernd vita af því. Hún vildi ekki að börnin hennar myndu horfa upp á hana í því ástandi. Vegna ölvunaraksturs þurfti hún að sitja inni og gerði hún það.

„Ég sat í rúminu í fangelsinu og prjónaði 13 peysur."

Um leið og hún losnaði hélt hún áfram að nota vímuefni. Hún flutti til vinkonu sinnar og byrjaði að sprauta sig.

„Vinkona mín bauð mér að sprauta mig og mér fannst þetta rökrétt næsta skref í raun.“

Ellisif talar um þróunina sem hefur átt sér stað í þessum heimi. Fyrir nokkrum árum var það endastöð að nota vímuefni í æð en núna eru krakkar að byrja á því, sem er svo sorgleg staðreynd og hættuleg þróun.

Mörgum meðferðum, edrútímum og áföllum síðar verður tímabil sem Ellisif horfir á sem sitt erfiðasta, hún gat ekki lengur notað vímuefni en gat ekki verið edrú. Ofbeldið sem hún bjó við var hrottalegt. 

Ellisif fór í enn eina meðferðina og á áfangaheimilið Betra líf en ber því ekki góða sögu.

„Ég er edrú þrátt fyrir Betra líf. Það var mjög mikil neysla þar og ofboðslega erfitt að vita að ég gæti bara bankað á næstu hurð og fengið mér. Það urðu líka nokkur dauðsföll þar á meðan ég var þar. Ég endaði á að hringja í pabba og hann sótti mig,“ segir hún og bætir við:

„Ég vil meina að ég hafi bara fæðst beygluð, ég get ekki kennt neinum um fíknina mína.“

Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni á hlaðvarpsvef mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál