Snæbjörn Ragnarsson, þungarokkari í Skálmöld og meðlimur í Ljótu hálfvitunum, hefur ekki verið sérlega hrifinn af Smartlandi í gegnum tíðina og fyrir einhverjum árum skrifaði hann pistil sem breytti nethegðun hans. Í síðustu viku sættumst við Bibbi, eins og hann er kallaður, í beinni útsendingu hjá Loga á Stöð 2. Ég heimsótti hann í vikunni.