Konungleg kóróna eða hálsmen?

Mary, krónprinsessa Danmerkur, skellti sér í afmæli. Að sjálfsögðu bar …
Mary, krónprinsessa Danmerkur, skellti sér í afmæli. Að sjálfsögðu bar hún dýrindis skartgripi í tilefni þess. AFP

Mary, krónprinsessa Danmerkur, skellti sér í afmælisveislu Haraldar Noregskonungs í gær, en hann fagnaði áttræðisafmæli sínu.

Krónprinsessan hefur löngum verið þekkt fyrir að nýta fatnað, skart og skrautmuni vel, sem hún sýndi og sannaði enn á ný í veislunni.

Mary bar kórónu á höfðinu, en skartgripurinn er þannig gerður að hann má bæði nota sem höfuðskraut og hálsmen.

Eins og fram kemur í frétt Daily Mail hefur krónprinsessan nokkrum sinnum skartað djásninu, og sást hún fyrst með það árið 2015 þegar hún sótti Gala-kvöldverð til heiðurs Margréti Danadrottningu. Þá kaus hún að nota skartgripinn sem hálsmen. Á síðasta ári bar hún skartið á höfðinu í veislu sem haldin var í Amalíuborg.

Svo virðist vera sem skartgripurinn sé í miklu eftirlæti hjá …
Svo virðist vera sem skartgripurinn sé í miklu eftirlæti hjá krónprinsessunni. Skjáskot / Daily Mail
Hér má sjá skartið notað sem hálsmen.
Hér má sjá skartið notað sem hálsmen. Skjáskot / Daily Mail
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál