Steinþór Helgi Arnsteinsson og Glódís Guðgeirsdóttir eignuðust son í nótt. Það kom verulega á óvart þar sem 20 vikna sónar sagði þeim að von væri á stúlku.
„Þessi lilli sem plataði alla mætti með trompi kl 3 í nótt. 2 sek eftir að hann var mættur heyrðist „bídduuuuuu er þetta ekki pungur!?“ enda hafði okkur verið tjáð að við ættum von á lillu í 20 vikna sónar. Okkur finnst hann yndislegastur,“ sagði Glódís á facebooksíðu sinni.
Steinþór, sem er viðburðastjóri CCP, var í fréttum á dögunum þar sem hann ákvað að taka vatnsföstu í heila viku. Hann mælir eindregið með því að fasta.