Hermann Hreiðarsson, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu, hefur verið á lausu í þó nokkurn tíma en nú er hann genginn út. Sú heppna heitir Alexandra Fanney Jóhannsdóttir og starfar sem flugfreyja.
Parið tók stórt skref í gær og skráði sig í samband á Facebook. Smartland óskar þeim hjartanlega til hamingju með ástina og lífið.