Leik- og tónlistarkonan Jennifer Lopez sýnir línurnar í nýrri myndatöku fyrir InStyle tímaritið. Lopez prýðir forsíðu InStyle í desember. Í viðtalinu segir hún að hún hafi hugsað um sjálfa sig og að nú það sjáist það vel. Lopez varð 49 ára í sumar og lítur hreint stórkostlega út. Blaðamaður InStyle reyndi að fá uppúr henni hvernig hún næði að halda sér í svo góðu formi.
Lopez gaf henni fá svör, en sagðist hafa viðhaldið heilbrigðum lífstíl allt sitt líf. Hún drekkur ekki koffín, ekki áfengi og fær nægan svefn. Hún sagði einnig að hún sé farin að lyfta lóðum til að viðhalda vöðvamassanum, en hún tapar vöðvamassa ef hún dansar of mikið.