Heitasti eiginmaður veraldar?

Margir eru á því að Gylfi Þór Sigurðsson sé heitasti …
Margir eru á því að Gylfi Þór Sigurðsson sé heitasti eiginmaður veraldar.

Ekkert lát er á fallegum ljósmyndum úr brúðkaupsferð þeirra Alexöndru Helgu Ívarsdóttur og Gylfa Þór Sigurðssonar sem eru án efa frægustu nýgiftu hjón landsins. Þau eru eins og fyrr hefur komið fram stödd á Maldíveyjum í brúðkaupsferð en þau giftu sig á dögunum við Como-vatn á Ítalíu. 

Maldíveyjar er vinsæll áfangastaður fyrir nýgfift hjón. Dýri Kristjánsson og Ingibjörg Sveinsdóttir sem gengu í hjónaband í lok maí á þessu ári hafa einnig notið hveitibrauðsdaga sinna á eyjunni að undanförnu. 

Ljósmyndirnar sem Alexandra og Gylfi birta úr brúðkaupsferðinni eru listrænar og fallegar og birti Alexandra nýverið ljósmynd af Gylfa sem margir eru á því að sýni að hún eigi einn heitasta eiginmann veraldar. 

Þau virðast vera að leika sér með hugmyndir sem tengja fegurðina á ströndinni við hjónabandið. Ljósmynd af Alexöndru sem tekin er í gegnum það sem virðist vera giftingarhringur Gylfa er vitnisburður um það. 

View this post on Instagram

Honeymoon 💍😆

A post shared by @ alexandrahelga on Jun 27, 2019 at 10:42am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál