„Það að vera miðaldra er meiri háttar“

Áslaug Hulda Jónsdóttir hjá Pure North Recycling og formaður bæjarráðs Garðabæjar á sama afmælisdag og Smartland, 5. maí, þó að það muni aðeins á árunum. Hún segir mikla spennu fylgja því að eiga afmæli og að hún sé að taka miðaldraskeiðið með trompi. 

Hvað er að frétta?

„Það er mikið að gera hjá mér á öllum vígstöðvum þessa dagana. Hjá Pure North Recycling erum við að byggja upp fyrirtæki sem endurvinnur plast og jarðvarminn er í aðalhlutverki. Síðan er alltaf fjör í pólitíkinni í Garðabæ og verkin mörg og spennandi. Ég er líka búin að miðaldra yfir mig – við erum að tala um að fara á gönguskíði, í sjósund, fjallgöngur – og svo er ég á leið á golfnámskeið í næstu viku! Ég er búin að komast að því að það að vera miðaldra er meiri háttar.“

Til lukku með afmælið. Hvað á að gera í tilefni dagsins?

„Takk fyrir. Það er gaman að eiga afmæli! Ég ætla að byrja daginn á sundi og gufu. Ég mun vinna smávegis og elda síðan eitthvað gott með sex metrunum sem ég bý með, þ.e. eiginmanni og tveimur sonum. Engar áhyggjur – ég mun líka finna tíma til að skála með mínum bestu konum!“

Hver er besti afmælisdagurinn þinn til þessa?

„Ég er bæði hrifnæm og gleymin og finnst alltaf síðasti afmælisdagurinn sá besti. Þannig að dagurinn í dag verður pottþétt besti afmælisdagurinn minn. Þangað til á næsta ári.“

En sá versti?

„Ég hef haldið því fram síðan ég byrjaði að tala að það sé alltaf sól 5. maí. Einu sinni var rigning á afmælisdaginn minn, það fannst mér vesen.“

Hvað hefur lífið kennt þér?

„Að það þýðir ekkert að taka þetta of alvarlega. Þetta fer allt einhvern veginn. Og hlutirnir eiga það til að fara eins og þeir eiga að fara. En fátt kemur af sjálfu sér.

Svo eigum við að vanda okkur í því sem við gerum og vera almennilegar manneskjur. Já, og börnin – lífið hefur kennt mér að þau vaxa allt of hratt.“

Hvað ætlarðu að gera á nýju afmælisári?

„Ég ætla að halda áfram að njóta með mínum og miðaldra yfir mig. Vonandi fer svo fólk að hittast. Ég hlakka til að geta aftur hitt fólk. Að hlæja meira og njóta. Ég ætla að byrja aftur í kraftlyftingum og mun skrá mig í þjálfun hjá meistara Öddu í kraftlyftingadeild Stjörnunnar. Það er töff að lyfta – og mjög mikilvægt fyrir miðaldra „corið“.“

Hverju ætlar þú að sleppa?

„Ég ætla að sleppa fiskum. Ég veiði þá á flugu og sleppi þeim svo flestum. Það er stundum jafnmikið kikk og að fá'ann. Ég reyni líka oftast að sleppa leiðindum.“

Ég frétti að þú lítir svo svakalega vel út þessa dagana – hver er galdurinn á bak við það?

„Nú veit ég ekki hvar þú fréttir það en mikið er ég ánægð með nafnlausa heimildarmanninn! Það eru allir sætari í stuði en fýlu – og ég er oftast í stuði.

Ég er mikið úti, fer í sund og gufu. Labba með hundinn nema í rigningu því hundurinn minn þolir ekki rigningu. Þá daga viðra ég karlinn. Og í staðinn fyrir það að borða alls konar með salati þá borða ég salat með alls konar. Ég borða minna hveiti og lítinn sykur. Síðan var ég líka með alls konar yfirlýsingar og tók einhverju veðmáli. Þeir sem þekkja mig vita að það er ekki séns að ég tapi veðmáli. Þannig að já, ætli megi ekki segja að ég komi aðeins minni út úr Covid.“

Hvaða merkingu hefur Smartland fyrir þig?

„Það er smart að eiga sama afmælisdag og Smartland! Það toppar það fátt.“

Getur þú sagt okkur eitthvað spennandi tengt vinnu og viðskiptum?

„Það eru gríðarleg tækifæri sem tengjast umhverfismálunum og við verðum að grípa þessi tækifæri. Og ég trúi því að þar getum við búið til fleiri fyrirtæki og fleiri störf. Atvinnulífið og hið opinbera verða að vinna þetta saman. Við sem þjóð eigum svo mikið undir því. Við þurfum að byggja upp sterka innviði og þar gegnir innlend endurvinnsla mikilvægu hlutverki. Það er því ótrúlega skrítið að þurfa á tímum sjálfbærni og hringrásarhagkerfis að vera að berjast við kerfið. Að nýsköpunarfyrirtæki eins og Pure North sem er að endurvinna plast við bestu mögulegu aðstæður þurfi að berjast fyrir tilverurétti sínum, vanti stundum plast til endurvinnslu vegna þess að hvatarnir í kerfinu styðja við það að plastið sé sent óunnið úr landi. Við töpum í virðiskeðjunni og umhverfið tapar líka. Síðan vitum við ekki hvar þetta plast endar. Því miður höfum við of mörg dæmi um það að plastið endi í Asíu þar sem innviðir eru veikir og farvegir ekki eins og við viljum hafa þá. Við eigum að gera betur. Við getum gert svo miklu betur.“

Hvað er jákvætt við starfsumhverfi þitt?

„Það er mjög jákvætt hvað umhverfismálin hafa fengið aukið vægi í íslenskri pólitík síðustu ár. Ég finn fyrir þessum aukna áhuga í Garðabæ. Þar höfum við um langt skeið lagt mikla áherslu á umhverfismálin og það hefur sem dæmi ekkert sveitarfélag friðlýst hlutfallslega jafnmikið landsvæði og Garðabær. Þetta eru ómetanleg verðmæti inn í framtíðina. Síðan er starfæna byltingin loksins að fá pláss og ég á von á miklum og hröðum framförum þar. Í grunninn snýst pólitíkin um forgagnsröðun og traustur fjárhagur er forsenda góðrar þjónustu.“

The Ultimate Appetizer Board with cheese and meat.
The Ultimate Appetizer Board with cheese and meat.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál