Um þetta rífst fallegasta par veraldar

Blaquier og Figueras hafa verið saman frá því hún var …
Blaquier og Figueras hafa verið saman frá því hún var sautján ára og hann var tvítugur. mbl.is/Instagram

Þeir sem eru hrifnir af Polo Ralph Lauren þekkja andlit Ignacios „Nachos“ Figueras, þekktasta pólóspilara heimsins. Hann og Delfina Blaquier eiginkona hans hafa verið saman lengi og eru „hið fullkomna par“ að undanskildu einu; málinu sem þau rífast um reglulega. 

Figueras og Blaquier eru nýjustu gestir Works For Us-hlaðvarpsins sem Rachel Zoe og Rodger Berman stjórna. Hlaðvarpið fjallar um allt milli himins og jarðar sem viðkemur samskiptum og samböndum. 

Það sem virkar fyrir þau er að vera vinir. 

„Við erum ekki með eitthvað eitt sem við gerum til að sambandið gangi. Við erum ekki með töfrablöndu á bak við sambandið en við erum mjög góðir vinir og höfum verið saman svo lengi. Við eyðum meiri tíma saman en í sundur. Við ferðumst saman og upplifum hlutina saman og börnin okkar eru eins konar hornsteinn í lífinu. Eins spilum við bæði póló, elskum fallegan fatnað og að ferðast. Sambandið er ekki fullkomið en við erum vinir og það skiptir mestu máli í lífinu. Eins sú staðreynd að við erum betra fólk vegna sambandsins í stað þess að sambandið dragi úr okkur. Eins reynum við að lyfta hvort öðru upp í stað þess að keppa við hvort annað. Við erum þó alls ekki sammála um allt í lífinu og erum svo langt frá því að vera fullkomin,“ segja þau. 

Figueras er mikill fjölskyldufaðir og hefur það fyrir reglu að borða bæði hádegismat og kvöldmat með börnum sínum. 

„Það eru ekki allir feður svona lánsamir eins og ég. Ég er mikið með börnunum okkar.“

Ekkert samband er fullkomið og rífast þau reglulega um eitt atriði sem þau hafa ekki ennþá náð tökum á. 

„Já, hann vill vera á réttum tíma þegar við eigum að mæta eitthvað saman. Hann er úti lengi, kemur svo skyndilega inn, fer í sturtu og er tilbúinn á nokkrum mínútum og byrjar þá að rífast í mér að drífa mig. Ég stressast þá upp og gleymi einhverju sem skiptir mig verulega miklu máli,“ segir Blaquier. 

„Ég vil vera á réttum tíma og er mjög nákvæmur með þetta. Ég veit hvað það tekur langan tíma að taka mig til og skil ekki hvað er svona flókið við þetta. Við verðum seint sammála um þetta. En við höldum hvort með öðru og keppum ekki við hvort annað, sem ég held að sé grunnurinn að öllum góðum samböndum sem virka í dag.

Það borgar sig aldrei að ýta á hana, þá ýtir hún bara fastar til baka. Það reyni ég að muna. Að þessu undanskildu þá á ég bestu konu veraldar. Ég er einstaklega heppinn maður,“ segir Figueras.

Hjónin eru vinsæl á meðal tískuhönnuða. Hér eru þau Delfina …
Hjónin eru vinsæl á meðal tískuhönnuða. Hér eru þau Delfina Blaquier og Nacho Figueras með Valentino. mbl.is/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál