Helstu áhrifavaldar þessa lands höfðu það meira en notalegt í síðustu viku ef marka má Instagram. Fatahönnuðurinn Marín Manda Magnúsdóttir festis í útlöndum með vinkonum sínum, það gerði samfélagsmiðlastjarnan Kara Kristel Signýjardóttir líka. Smartland tók saman það helsta af Instagram úr liðinni viku.
Fyrrverandi fótboltakappinn Rúrik Gíslason var bara á sloppnum um helgina.
Áhrifavaldurinn Sunneva Eir Einarsdóttir fagnaði afmæli kærasta síns, Benedikts Bjarnasonar,
Dansarinn Ástrós Traustadóttir er tilbúin í valentínusardaginn, sem er einmitt í dag.
Tískubloggarinn Elísabet Gunnarsdóttir naut kyrrðarinnar í Kjósinni.
Rapparinn Aron Can naut lífsins í útlöndum.
Samfélagsmiðlastjarnan Kara Kristel Signýjardóttir festist í útlöndum í síðustu viku.
Söngkonan Þórunn Antonía Magnúsdóttir ætlar að fara alla leið.
Móeiður Lárusdóttir hélt upp á afmæli kærasta síns, Harðar Björgvins Magnússonar.
Áhrifavaldurinn Camilla Rut Rúnarsdóttir hafði það notalegt með hundinum sínum Mímósu.
Athafnakonan Birgitta Líf Björnsdóttir skellti sér út á lífið.
TikTok-stjarnan Brynhildur Brá Gunnlaugsdóttir birti þessa mynd.
Leikkonan Unnur Eggertsdóttir er gengin 35 vikur með dóttur sína.
Það eru margir ókannaðir staðir á Íslandi að mati ferðaljósmyndarans Ásu Steinarsdóttur.
Fatahönnuðurinn og meistaraneminn Marín Manda Magnúsdóttir festir í Gdansk með vinkonum sínum.
Kírópraktorinn Guðmundur Birkir Pálmason skellti sér í helgarferð til Lundúna með kærustu sinni Línu Birgittu Sigurðardóttur athafnakonu. Guðmundur prýddi einmitt forsíðu Smartlandsblaðsins sem kom út á föstudaginn í síðustu viku og því tilefni til að fagna.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla- iðnaðar og nýsköpunarráðherra, naut lífsins í brekkum Hlíðafjalls.
Söngkonan Svala Björgvinsdóttir fagnaði því að vera einu ári eldri.