„Það er eldur í ástinni okkar“

Friðrik Karlsson og Laufey Birkisdóttir kynntust fyrir nokkrum árum og …
Friðrik Karlsson og Laufey Birkisdóttir kynntust fyrir nokkrum árum og búa nú saman. mbl.is/Kristinn Magnússon

Laufey Birkisdóttir snyrtifræðingur og Friðrik Karlsson tónlistarmaður eru par sem eftir er tekið. Þau búa í fallegu húsi á Seltjarnarnesi þar sem hún rekur snyrtistofu og hann hljóðver. Þau taka lífinu með stóískri ró og leyfa sér að þroskast fallega með árunum. 

Leiðir Laufeyjar Birkisdóttur snyrtifræðings og Friðriks Karlssonar tónlistarmanns lágu fyrst saman fyrir fimm árum þegar þau voru stöðugt að rekast hvort á annað í sundi eða úti í búð á Seltjarnarnesi. Á þeim tíma þekktust þau lítið, en Laufey hafði verið með brúðarmynd Friðriks fyrir augum sér úti í glugga á ljósmyndastúdíói Bonna, fyrrverandi eiginmanns síns til fjölda ára, og kannaðist að sjálfsögðu við hann úr hljómsveitinni Mezzoforte eins og við hin. Friðrik vissi hver Laufey var líka, enda fáar konur jafn heillandi og hún er, og kviknaði strax forvitni innra með honum að fá að kynnast henni betur. Á þessum tíma bjuggu þau hvort í sinni íbúð á Seltjarnarnarnesinu, Laufey á Rekagranda með börnum sínum tveimur og Friðrik á Eiðistorgi með sínu barni.

Í dag búa þau í rúmgóðu huggulegu húsi sem stendur á sjávarlóð á Seltjarnarnesi þar sem pláss er fyrir alla á heimilinu, ásamt því sem snyrtistofan Leila Boutique er á fyrstu hæð hússins þar sem gestir stofunnar fá fyrsta flokks húðmeðferðir og slökun sem náð er fram með nuddi og tónlist sem Friðrik gerir úr hljóðverinu sínu á efri hæðinni.

„Við Friðrik eigum mjög margt sameiginlegt. Við höfðum bæði dvalið um tíma í Bretlandi, erum skapandi og skemmtileg og deilum mörgum sömu hugmyndum um lífið þótt ég hafi alls ekki verið tilbúin í samband fyrir fimm árum þegar við hittumst fyrir alvöru fyrst.“

mbl.is/Kristinn Magnússon

Ætli það sé til einn betri tími en annar þegar ástin bankar á dyrnar?

„Nei greinilega ekki þegar maður er með mann eins og Friðrik fyrir framan sig. Það er svo mikill eldur í honum og það sem heillaði mig strax við hann var hversu mikla hæfileika hann er með, og þá ekki bara í tónlistinni heldur einnig þegar kemur að lífinu sjálfu. Ég segi stundum að hann sé mitt andlega gúrú, hann er mín stoð og stytta og saman stöndum við traustum fótum þótt á móti blási,“ segir Laufey og Friðrik tekur við: „Já ætli lífið hafi ekki kennt manni að það á ekki bara að vera auðvelt. Lífið er alls konar og það er einmitt það sem er svo heillandi við það.“

Stórhuga afi sem sendi börnin út í heim

Laufey var sautján ára að aldri þegar hún flutti til Bretlands fyrst þar sem hún skráði sig í menntaskóla. Hugmyndina átti afi hennar, Skarphéðinn Ásgeirsson, frumkvöðull og stofnandi klæðagerðarinnar Amaro á Akureyri á fimmta áratug síðustu aldar.

,,Klæðagerðin framleiddi meðal annars nærföt sem voru seld um land allt. Hann byrjaði á því að smíða leikföng í kjallaranum á húsinu sínu og reisti síðan í upphafi sjöunda áratugarins vöruhús á Akureyri að erlendri fyrirmynd með ólíkum deildum og alls konar varningi. Við fjölskyldan fengum fljótt áhuga á viðskiptum og vildi afi að við færum öll út í heim til að kynnast öðru tungumáli og fleira fólki. Dvöl mín í Bretlandi náði yfir sex ára tímabil. Ég kom heim eftir eitt ár í menntaskóla en fór svo aftur út þar sem ég fékk mér vinnu við að tína jarðarber áður en ég settist svo aftur á skólabekk í Bretlandi þar sem ég lærði snyrtifræði, leikhús- og kvikmyndaförðun og nudd. Eftir námið hóf ég störf fyrir Guerlain þegar það var fjölskyldufyrirtæki, og rak ég snyrtistofuna Guerlain á Óðinsgötu í 10 ár og hef ég haldið tryggð við vörumerkið allt frá þeim tíma,“ segir Laufey.

Hvernig var að læra í Bretlandi og eru þeir duglegir að sækja sér þjónustu snyrtifræðinga?

„Já. Bretar eru miklu opnari fyrir því að fara í snyrtingu og eru á undan okkur þegar kemur að því að gefa sér tíma í að sinna sjálfum sér. En þetta er allt að koma hjá okkur. Ég mæli með því fyrir alla að fara í snyrtingu í það minnsta einu sinni í mánuði og að líta á snyrtidaginn sem eins konar hvíld eða slökun, með góðum kremum og alls konar tækjum og tækni sem viðhalda unglegu útliti án skurðaðgerða.“

mbl.is/Kristinn Magnússon

Laufey er með einstaka húð sjálf og aðhyllist heildrænni meðferð þegar kemur að húðinni. Þar sem farið er ofan í alla þá þætti sem skipta máli til að líta vel út.

„Ég hef alltaf verið á þeirri skoðun að við þurfum að huga að því hvað við setjum ofan í okkur, ekki síður en hvað við setjum á húðina okkar.

Hvað við borðum og hvað við drekkum mikið af vatni, hvernig við sofum og ekki síst hvernig við ræktum sálina. Við getum ræktað okkur andlega með því að fara í ræktina, í sund, upp á fjöll og svo get ég seint hætta að mæla með því að leita til sérfræðinga til að vinna úr flóknum tilfinningum sem koma upp reglulega í lífinu.“

Vönduð krem setja svo punktinn yfir i-ið eins og Laufey orðar það.

„Sjálf er ég alltaf með tvö krem í gangi í einu. Ég nota serum með kremunum mínum, bæði morgna og kvölds. Ég er mikil Guerlain-kona, svo get ég ekki mælt nægilega mikið með CACI-húðmeðferðinni sem er fyrir átján ára og eldri. Það var í raun Friðrik sem benti mér á CACI-vörumerkið fyrst út á sýningu í Bretlandi, en ég býð upp á CACI-meðferð sem er stjörnumeðferð með vél sem styrkir húðina og vöðvana undir henni. Andlitið fær á sig unglegra form og mæli ég með allt að tíu tímum í vélinni sem hæglega breytir útlitinu þannig að fólk lítur út fyrir að vera fimm árum yngra.“

Laufey rekur snyrtistofu heima hjá þeim.
Laufey rekur snyrtistofu heima hjá þeim. mbl.is/Kristinn Magnússon

Trúir ekki á skyndilausnir í lífinu

Hvorki Laufey né Friðrik eru á því að hægt sé að afgreiða hlutina í lífinu í skyndi.

„Við trúum því að kórónuveiran hafi kennt okkur öllum að leita meira inn á við í lífinu. Við finnum það hér á snyrtistofunni hvað fólk kann meira og meira að meta nuddið og þá slökun sem fylgir með meðferðunum. Það er búið að hægja á okkur og við sitjum nú meira með okkur sjálf en áður. Við þurfum eins að rækta samböndin í lífinu og forgangsraða svo við séum að gera það sem færir okkur hamingju,“ segja þau sammála.

Hver er uppskriftin að góðu sambandi að ykkar mati?

,,Við værum aldrei í svona góðu sambandi ef ekki væri fyrir góða sjálfsrækt sem við erum bæði í og skynsamar ákvarðanir sem við höfum tekið á undanförnum árum, svo ekki sé minnst á góðan vin okkar, fjölskylduráðgjafann Kára Eyþórsson, sem leiðbeinir okkur óspart í lífsins ólgusjó,“ segir Friðrik sem telur það vera að færast í aukana að íslenskir karlmenn taki til í tilfinningum sínum.

„Þegar ég fór til Bretlands á sínum tíma, þegar ég var kallaður út til að spila á gítar í kvikmyndinni Evítu sem Madonna lék í, þá héldu margir að ég væri hommi, því ég talaði svo mikið um tilfinningar mínar. Ætli það hafi ekki sýnt mér hvað íslenskir karlmenn eru miklu opnari með þessi mál en karlmenn í Bretlandi. Það var þó ekki eins og ég hefði valið að gera þetta, heldur var bara kominn tími á að skoða hlutina hjá mér.“

mbl.is/Kristinn Magnússon

Mikilvægt að leyfa fullorðnu fólki að taka ábyrgð á sér

Er hægt að ná jafn langt í tónlist og þú hefur gert án þess að vinna aðeins í sér og forgangsraða?

„Nei ætli það. Ég er nú lítið fyrir að tala um eigin afrek þegar kemur að tónlistinni, en hef fengið stærri tækifæri en ég hefði nokkru sinni þorað að vonast eftir. Eins og þegar ég var fenginn til að spila með bresku tónlistarkonunni Kate Bush á 22 tónleikum árið 2014. Ég hætti að drekka fyrir fimm árum þegar ég kynntist Laufeyju, það var ein af þessum góðu ákvörðunum sem ég hef tekið í lífinu og tel ég að við værum aldrei saman í dag ef við hefðum ekki bæði stigið þetta góða skref í átt að heilbrigðari lífsstíl.“

Laufey tekur undir það og bætir við:

„Ég hef farið í gegnum svo margt að þessu leyti. Verið í löngu hjónabandi, og skilið, verið í brengluðum samskiptum, andlegu ofbeldissambandi, og ætlað að bjarga mönnum og fleira sem konur geta lent í. Allt þetta leiddi til þess að ég þurfti að horfast í augu við mig sjálfa. Ég get hlegið að þessu núna, eftir að ég áttaði mig á því að ég gat ekki alltaf kennt öðrum um það sem ég var að fara í gegnum. En ég er mjög forvitin um fólk og trúi alltaf hinu góða í öllum, en nú kann ég betur að vernda mig í alls konar aðstæðum og hef valið að vanda mig við að velja hverja ég umgengst daglega. Að vera afkomandi endalaust duglegra kvenna er þannig að maður hefur getað sett sig í alls konar aðstæður og bara brett upp ermarnar. Það er eiginleiki sem ég hef að hluta til þurft að losa mig við. Þótt ég verði alltaf kjarkmikil og iðin. Það er líka bara mjög kærleiksríkt að leyfa öðru fullorðnu fólki að læra að taka ábyrgð á sér. Það sem ég elska sem dæmi við Friðrik er að hann er ekki meðvirkur með mér. Það er hægt að fara á dýptina með honum í samtölum og bæði erum við tilbúin að skoða okkar hliðar á málunum. Það er það eina sem virkar að mínu mati.“

Hvernig gengur ykkur að vinna í sama húsinu?

„Það hefur bara gengið virkilega vel. Við erum heiðarleg við hvort annað og hreinskilin sem er eina leiðin til að sambúðin virki. Svo þegar eitthvað kemur upp á þá leyfum við því ekki að grassera heldur leysum við það fljótt og vandlega,“ segja þau.

Friðrik bendir á að eitt af því sem honum finnst mikilvægast við sjálfsvinnu er að bera ekki áföll áfram til barnanna.

„Foreldrar okkar voru auðvitað að gera sitt besta en þeim þótti mjög mikið mál að heimsækja sálfræðing. Okkar kynslóð er ekki þannig, í það minnsta ekki við. Þegar tilfinningarnar þurfa að koma fram, þá bara koma þær og þá hefur maður val um að vinna í þeim eða deyfa þær. Við höfum ákveðið að takast á við málin en ekki flýja þau.“

Íslenskar konur blóðheitar eins og konurnar við Miðjarðarhafið

Hugleiðslutónlistin sem Friðrik gerir hefur náð vinsældum hér á landi sem og erlendis og segir Laufey að það slokkni sérstaklega á konunum þegar þær hlusta á tónlistina.

„Ég held að við íslenskar konur séum blóðheitar með miklar tilfinningar líkt og konurnar við Miðjarðarhafið og það er eitthvað sem er gaman að ná tökum á.“

Er tónlistin þín leið í að róa okkur konurnar, Friðrik?

„Mér hefur alltaf þótt rosalega skemmtilegt að gera tónlist og hef fengið fleiri tækifæri til þess í lífinu en margir aðrir. Konur eru svo þær sem hlusta hvað mest á hugleiðslutónlistina, en ég held hún sé gerð jafnmikið fyrir mig sjálfan og aðra. Ég hef verið fastur í sama farinu þegar kom að samböndum áður en ég kynntist Laufeyju og þurfti að vinna í því. Ég get alveg samþykkt að konur stjórnist meira af tilfinningum sínum en við karlar gerum, en við eigum að sjálfsögðu alltaf að vera að bæta okkur líka.“

Er þá sambandið ykkar þannig að þú ert kryddið í sambandinu, Laufey, og hann jarðtengingin?

„Já kannski, en það er alveg fönk í honum líka. En hann er svo djúpur og mikið á andlegu nótunum að það er mjög róandi og gott að vera nálægt honum.“

Nú er áfengislaus lífsstíll að verða meira áberandi, hvernig er að vera par á þeirri braut?

„Lífið kemur í alls konar tímabilum og nú erum við á þessu fallega tímabili í okkar lífi þar sem við veljum að gera vel við okkur.

Fólk fær ákveðnar ranghugmyndir þegar það drekkur og á alltaf erfiðara með að fást við sjálft sig þegar það er að deyfa sig. Í raun býr áfengi til fleiri vandamál en það leysir. Friðrik hætti á undan mér og þótt ég hafi aldrei drukkið mikið þá valdi ég að fylgja honum eftir í því. Enda finnst okkur ekkert smart að geta ekki passað barnabörnin því amma og afi eru að fá sér í glas. Við viljum fjárfesta í okkur núna og gefa af því sem við erum að gera til annarra. Bæði hvað viðkemur tónlistinni og einnig hvað viðkemur heildrænni heilsumeðferð á snyrtistofunni.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál