Instagram: Djamm, djamm, djamm

Samsett mynd

Hálf þjóðin skellti sér á djammið um helgina ef marka má Instagram, enda fátt betra en að henda í gott partí yfir Söngvakeppninni. Friðrik Dór Jónsson hélt svo tónleika í Hörpu á föstudag og samkvæmt öruggum heimildum Smartlands var mætingin mjög góð. Þau sem ekki fóru á djammið virðast hafa verið í skíðabrekkum þessa lands. Smartland tók saman það helsta af Instagram úr vikunni. 

Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir skellti sér í happy hour og var klædd í sitt fínasta púss. 

Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson gerði allt vitlaust á balli hjá Kvennaskólanum. 

View this post on Instagram

A post shared by Páll Óskar (@palloskar)

Förðunarfræðingurinn Heiðdís Rós Reynisdóttir fagnaði alþjóðlegum baráttudegi kvenna.

TikTok-stjarnan Brynhildur Gunnlaugsdóttir skellti sér í pottinn.

Tónlistarkonan Þórunn Antonía Magnúsdóttir hafði nóg fyrir stafni um helgina. 

Fegurðardrottningin Fanney Ingvarsdóttir kíkti niður í miðbæ Reykjavíkur í gær.

Fyrrverandi fótboltamaðurinn Rúrik Gíslason birti myndir úr ískaldri myndatöku í janúar.

Tísku­blogg­ar­inn Pattra Sriyanonge birti fallega mynd af sér að gefa dóttur sinni brjóst.

View this post on Instagram

A post shared by Pattra S (@trendpattra)

Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson var heldur betur ánægður með laugardagskvöldið.

 Ísold Halldórudóttir sat fyrir á undirfötum einum saman og birti mynd af því á Instagram. 

View this post on Instagram

A post shared by ISOLD (@isoldhalldorudottir)

Viktor Andersen klæddi sig í sitt fínasta púss en hann varði helginni á Akureyri og naut þess í botn. 

Binni Glee lét sig ekki vanta á Söngvakeppnina og skartaði glæsilegu bleiku vesti sem keyrði upp stemninguna eins og enginn væri morgundagurinn. 

View this post on Instagram

A post shared by BRYNJAR (@binniglee)

Tónlistarkonan Bríet nýtur lífsins í Las Vegas í Bandaríkjunum.

View this post on Instagram

A post shared by BRÍET (@brietelfar)

Áhrifavaldurinn og förðunarfræðingurinn Fanney Dóra Veigarsdóttir er ánægð með að vorið sé á leiðinni. 

Ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir er á leið til Íslands og nýtti síðustu sólargeislana í Sofiu í Búlgaríu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál