Instagram: Barbie-teiti gerði allt vitlaust

Svanhildur Heiða, Hera Gísladóttir, Marín Rós, Eydís Perla og Guðrún.
Svanhildur Heiða, Hera Gísladóttir, Marín Rós, Eydís Perla og Guðrún. Ljósmynd/Instagram

Vikan var með fjörugra móti á Instagram. Fólk hélt upp á afmæli sín, mætti í partý, á árshátíðir og gæsanir eins og enginn væri morgundagurinn. 

Tara Sif Birgisdóttir dansari og áhrifavaldur hélt upp á afmælið sitt um helgina. Sérstakur Barbie-kassi vakti athygli en hann var heimaföndaður og kom vel út á mynd. Tara Sif var svo í danskjól frá Hönnu dansara. Það hefur verið töluverð stemning fyrir Barbie-tískunni en á dögunum kynnti tískuhúsið Balmain sérstakt samstarf við Barbie sem hefur vaktið heimsathygli. 

Hera Gísladóttir mætti í bleikum buxum og bleikum toppi í afmælisveislu Töru Sifjar. Hér er hún með vinkonum sínum en þess má geta að allar klæddust þær bleiku. 

Áhrifavaldurinn Brynhildur Brá Gunnlaugsdóttir sýndi kroppinn.

CrossFit-stjörnunni og áhrifavaldinum Eddu Falak fannst orðið tímabært að skella í nýja forsíðumynd.

View this post on Instagram

A post shared by Edda Falak (@eddafalak)

Einkaþjálfarinn Telma Fann­ey Magnús­dótt­ir sellti sér til Bandaríkjanna og hitti kærastann sinn, Jökul Júlíusson söngvara Kaleo. Kaleo er á tónleikaferðalagi um Bandaríkin. 

View this post on Instagram

A post shared by Telma Fanney (@telmaafanney)

Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir klæddist hvítri korselettu í tilefni sunnudags.



 

Útvarps- og bingóstjórinn Sigurður Þorri Gunnarsson skellti sér í gervi Frú Sigríðar á meðan hann dvaldi á paradísareyjunni Tenerife.

Fyrrverandi fótboltakappinn Rúrik Gíslason tók sprettinn við Skógarfoss.

Fegurðardrottningin Fanney Ingvarsdóttir skammaðist sín ekki fyrir sjálfumyndinar.

Tískubloggarinn Pattra Pattra Sriyanonge tók þátt í gæsun á Hólmfríði Björnsdóttur lögfræðingi. Hólmfríður og Jóhann Berg Guðmundsson landsliðsmaður eru að undirbúa brúðkaup sitt. 

View this post on Instagram

A post shared by Pattra S (@trendpattra)

Söngvarinn Páll Óskar klæddist glimmergallanum og lét gott af sér leiða.

View this post on Instagram

A post shared by Páll Óskar (@palloskar)

Tónlistarkonan Bríet Ísis Elfar sópaði til sín verðlaunum á Íslensku Tónlistarverðlaununum sem fram fóru í liðinni viku.

View this post on Instagram

A post shared by BRÍET (@brietelfar)


Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri World Class og eig­andi Banka­stræt­is Club, fór á árshátíð World Class og dressaði sig upp eins og móðir hennar gerði á sama viðburði fyrir 30 árum. 

Sara Piana hefur ekki mætt í ræktina í næstum því tvö ár en er tilbúin að snúa til baka fljótlega. 

View this post on Instagram

A post shared by Sara Piana (@thesarapiana)

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir bakaði margra hæða fermingartertu fyrir systurdóttur sína sem fermdist um helgina. 

Helga Margret klæddist glæsilegum límónugrænum glimmerkjól í sex ára afmæli Sæta svínsins. 

Förðunarmeistarinn Heiðdís Rós klæddist bláum glansandi kjól og var í gullskóm við þegar hún mætti í tíu ára afmæli Villa AZUR. Með henni á myndinni er Aðalheiður Dögg. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál