Instagram: Páskar af dýrari gerðinni

Af Instagram að dæma nutu helstu stjörnur Íslands páskanna í botn. Vel er skiljanlegt að bílastæðin í Keflavík hafi fyllst fyrir páskana því önnur hver manneskja virðist hafa skellt sér til útlanda yfir hátíðirnar. Smartland tók saman það helsta af Instagram. 

Leikarinn Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi Jr., hafði það gott í Velje í Danmörku.

View this post on Instagram

A post shared by Steindi Jr. (@steindijr)

Chloé Ophelia og Árni Elliott fögnuðu ástinni um páskana og líka því að hafa verið saman í 20 ár. Í nútímasamfélagi telst það til tíðinda! Og hvar er betra að fagna ástinni en í hinni rómantísku Kaupmannahöfn. 

Björk Guðmundsdóttir listamaður mætti á frumsýningu kvikmyndarinnar The Northman í rauðum kjól og með litríka hárkollu. Hún klæddist kjól frá Loewe en Sunna Björk farðaði hana. Það var Tomihiro Kono sem sá um hárið! 


Fegurðardrottningin Fanney Ingvarsdóttir var reyndar heima um páskana og naut lífsins með fjölskyldunni í sveitinni. 

Tónlistarmaðurinn Salka Sól Eyfeld átti afmæli um páskana og fagnaði því með sínu besta fólki. Eiginmanni og börnunum tveimur. 

Eiginmaður Sölku Sólar, tónlistarmaðurinn Arnar Freyr Frostason, óskaði frú sinni til hamingju með daginn með þessari fallegu afmæliskveðju. 

View this post on Instagram

A post shared by arnarerulfur (@arnarerulfur)

Leikkonan Nína Dögg Filippusdóttir varði páskunum Arizona í Bandaríkjunum ásamt eiginmanni sínum og vinum þeirra. Með í för voru til dæmis Hrefna Bachmann sem hélt eftirminnilega afmælisveislu á Ítalíu í fyrra. 

Tónlistarmaðurinn Guðrún Ýr Eyfjörð tilkynnti um væntanlegt lag og birti mynd af sér með kúluna á sviðinu. Eins og sést á myndinni elskar hún að vera ólétt! 

Tónlistarmaðurinn og rithöfundurinn, Birgitta Haukdal, er ánægð með páskagiggið og hlakkar til að stíga á svið með sinni gömlu hljómsveit, Írafár, í maí. Þeir sem dýrka Írafár eru þegar farnir að telja niður og ætla sko ekki að missa af þessum tónleikum. 

Tónlistarmaðurinn Berglind Saga Bjarnadóttir, betur þekkt sem Saga B, undirbýr sig fyrir fegurðarsamkeppni sem hún er að far taka þátt í á Ítalíu. Eins og sést á myndinni gengur undirbúningur vel. 

Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson átti sína bestu páskahelgi frá upphafi. Hann skemmti til dæmis á Ísafirði eða Ibizafirði eins og hann er stundum kallaður þegar fjörið fer yfir öll mörk. 

View this post on Instagram

A post shared by Páll Óskar (@palloskar)

Crossfit-stjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir naut lífsins í Panorama Glass Lodge.

Tiktok-stjarnan Brynhildur Gunnlaugsdóttir var túristi og skoðaði Seljalandsfoss. 

Athafnakonan Birgitta Líf Björnsdóttir birti fyrstu myndina af sér og nýja kærastanum, Enok Vatnari Jónssyni. Eins og sést á myndinni er hjónasvipur með þeim. 

Fótboltastjarnan Sara Björk Gunnarsdóttir knúsaði soninn um páskana og naut lífsins með kærasta sínum, knattspyrnumanninum Árna Vilhjálmssyni. 

Ljósmyndarinn Saga Sig og fjöllistamaðurinn Vilhelm Anton Jónsson fóru á kaldari slóðir um páskana þar sem skíði voru meðal annars dregin fram. 

View this post on Instagram

A post shared by Saga Sig (@sagasig)

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens kynnti nýjan fjölskyldumeðlim. Ekki er um barn að ræða heldur mjög loðinn ferfætling. Fólk sem býr á Seltjarnarnesi þarf hund! 

Kærustuparið Lára Clausen og Benedikt Hlöðversson nutu lífsins á Tenerife. Benedikt varð 26 ára um páskana. „Besti vinur minn 26 ára í dag til hamingju með daginn ástin mín,“ skrifaði samfélagsmiðlastjarnan. 

Leikkonan Elma Stefanía Ágústsdóttir naut lífsins á sundfötunum á Kanarí enda hvergi betra að vera en í sólinni. Með í för var eiginmaðurinn Mikael Torfason, börnin þeirra og tengdaforeldrar hennar. 

Matarbloggarinn Eva Laufey Kjaran dýrkar Tenerife og auðvitað skellti hún sér þangað ásamt  fjölskyldunni um páskana. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál