Gunnar Þorsteinsson, yfirleitt kenndur við Krossinn, og Helga Lúthersdóttir eru trúlofuð. Þau greindu frá trúlofuninni á Facebook í gær. DV greindi fyrst frá.
Mikill aldursmunur er á hinu nýtrúlofaða pari en hann fæddist árið 1951 og hún 1975 og því 24 ár sem skilja þau að.
Gunnar var forstöðumaður trúfélagsins Krossins í Kópavogi á árunum 1979 til 2010. Hann var áður kvæntur íþróttafræðingnum Jónínu Benediktsdóttur, en hún lést í desember 2020.
Það er mikið umrót í fjölskyldu Gunnars um þessar mundir en barnabarn hans, Camilla Rut Rúnarsdóttir, tilkynnti í gær skilnað við eiginmann sinn Rafn Hlíðkvist Björgvinsson.