Það var nóg um að vera hjá landanum þessar fyrstu helgi júlí mánaðar sem oft er ein vinsælasta ferðahelgi ársins. Áhrifvaldurinn og athafnamaðurinn Egill Fannar Halldórsson skellti sér að sjálfsögðu í útilegu og áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir kannaði aðstæður í Skógarböðunum. Smartland tók saman það helsta af Instagram.
Tískubloggarinn Elísabet Gunnarsdóttir átti fullkomið stefnumót í Fosslaug á föstudag.
Söngkonurnar Svala Björgvinsdóttir og Gréta Karen Grétarsdóttir skelltu sér í myndatöku í fötum frá kynlífstækjaversluninni Adam og Eva.
Leikkonan Aldís Amah Hamilton er í Þýskalandi á vegum snyrtivörufyrirtækisins Dr. Hauschka.
Áhrifavaldurinn Camilla Rut Rúnarsdóttir átti góðan dag með vinkonum sínum en þær fóru meðal annars í flúðasiglingu.
Tónlistarmaðurinn Herra hnetusmjör ætlar að koma sér í form fyrir Idol stjörnuleit, en hann er einn fjögurra dómara í keppninni.
Matarbloggarinn Berglind Guðmundsdóttir nýtur nú lífsins á Grikklandi.
Útvarpskonan Kristín Sif Björgvinsdóttir og tónlistaraðurinn Stefán Jakobsson, betur þekktur sem Stebbi Jak, birtu fyrstu myndina af sér saman á Instagram og opinberuðu um leið samband sitt.
Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir skellti sér í fyrsta sinn í Skógarböðin sem opnuðu nú í vor.
Áhrifavaldurinn Hildur Sif Hauksdóttir er búsett í Lundúnum á Bretlandi. Hún virðist hrifin af bresku höfuðborginni í júlí.
Áhrifavaldurinn og athafnamaðurinnn Egill Fannar Halldórsson fór í útilegu og skoðaði landið.
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, lét sig ekki vanta á Landsmót hestamanna sem hófst um helgina.
Hjónin Felix Bergsson og Baldur Þórhallsson áttu góðan dag með böörnum sínum og barnabörnum.
Tiktok-stjarnan Brynhildur Gunnlaugsdóttir er stödd í Króatíu ásamt kærasta sínum, körfuboltamanninum Dani Koljanin.
Kírópraktorinn Guðmundur Birkir Pálmason og sambýliskona hans, áhrifavaldurinn Lína Birgitta Sigurðardóttir, skáluðu í kampavíni í síðustu viku.
Skemmtikrafturinn Sólmundur Hólm Sólmundsson og fjölmiðlakonan Viktoría Hermannsdóttir nutu sín upp í sveit með fjölskyldunni.
Áhrifavaldurinn Fanney Dóra Veigarsdóttir kvaddi júní mánuðinn með stæl í appelsínugulum kjól.
Fyrrverandi fegurðardrottningin Fanney Ingvarsdóttir sleikti sólina á Alicante, Spáni.
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens birti speglamynd af sér berum að ofan. Hann segir það markmið sitt að deyja í formi.
Leikkonan Kristín Pétursdóttir birti fallegar myndir úr Flateyjarferð sinni.
Áhrifavaldurinn og athafnakonan Tanja Ýr Ástþórsdóttir skellti sér í Sky Lagoon um helgina. Tanja er búsett í Lundúnum á Bretlandseyjum en er stödd á Íslandi um þessar mundir.
Áhrifavaldurinn Birgitta Líf Björnsdóttir fór í jöklaferð með kærasta sínum Enok Jónssyni.