Það var nóg um að vera þessa aðra helgi í júlí. Annar hver tónlistarnmaður landsins kom fram á Kótelettuni á Selfossi meðan hinir skemmtu á Eistnaflugi í Neskaupsstað. Þá þurfu einnig margir að sinna skyldum sínum á Höfuðborgarsvæðinu, hvort sem það var á Símamótinu í Kópavogi eða á djamminu í miðborg Reykjavíkur.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra gerði hvorugt en hún fór út til Bretlands til að styðja við stelpurnar í fótboltalandsliðinu sem spiluðu sinn fyrsta leik á Evrópumeisaramótinu í fótbolta í gær.
Tónlistarkonan Selma Björnsdóttir og fréttastjórinn Kolbeinn Tumi Daðason skelltu sér í göngu með góðum vinum.
Fótboltamaðurinn Birkir Bjarnason og fyrirsætan Sophie Gordon voru dugleg að skoða Ísland í sumar.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra skellti sér út til Bretlands til að styðja við stelpunar okkar á Evrópumeistaramótinu í fótbolta sem fer fram þar í landi.
Áhrifavaldurinn Elín Erna Stefánsdóttir birti fallegar myndir úr Barcelona-fríinu.
Fyrirsætan og framleiðandinn Berglind Icey er nú í Portúgal með kærasta sínum og barni.
Leikkonan Brynja Kúla er í skýjunum í París í Frakklandi.
Sjónvarpskonan Marín Manda Magnúsdóttir hafði það gott í júní mánuði eins og sjá má á myndum hennar.
Kristbjörg Jónsdóttir einkaþjálfari stóð á höndum.
Áhrifavaldurinn Sunneva Eir Einarsdóttir klæddist bleikum djammtopp.
Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson tryllti lýðinn á Kótelettunni á Selfossi um helgina auk Helga Björnssonar og Love Guru.
Tónlistarkonan Gugusar skellti sér út á leik Íslands gegn Belgíu á Evrópumeistaramótinu í fótbolta.
Tónlistarkonan Svala Björgvinsdóttir rifjaði upp Kaliforníuárin.
Leikkonan Saga Garðarsdóttir og tónlistarmaðurinn Snorri Helgason höfðu það gott á Ítalíu.
Crossfit-stjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir surfaði áhyggjulaus í Kanada með kærastanum sínum.
Áhrifavaldurinn og fasteignasalinn Hrefna Daníelsdóttir klæðis öllum regnboganum.
Leikkonan Kristín Pétursdóttir klæddi sig upp í póstnúmeri 101.
Tiktok-stjarnan Brynhildur Gunnlaugsdóttir beraði bossann í Pula í Króatíu.
Samfélagsmiðlastjarnan Helga Sigrún Hermannsdóttir fór á árshátíð um helgina.
Tónlistarmaðurinn Herra hnetusmjör lét sjá sig á Landsmóti hestamanna á Hellu.
Förðunarfræðingurinn Heiðdís Rós Reynisdóttir skellti sér á bát við Miami Beach í Flórída.
Onlyfans-stjarnan Klara Sif Magnúsdóttir og kærasti hennar Delyn hafa verið saman í eitt ár.
Leikarinn Felix Bergsson og eiginmaður hans, Baldur Þórhallsson, senda sumarkveðjur frá Barcelona.
Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal átti afmæli í síðustu viku og náði næstum því að draga kærustuna sína með á mynd í tilefni dagsins.
Hlaupakonan Mari Jaersk fékk sér einn ískaldan Dorada við ströndina í Puerto De Santiago.
Þjálfarinn Sandra Björg Helgadóttir var gæsuð af vinkonu sínum um helgina. Eðal skvísuhópur tók þátt í gæsunninni.
Áhrifavaldurinn Ína María Norðfjörð og körfuboltalandsliðsmaðurinn Elvar Már Friðriksson hlóðu barreríin í sveitinni.
Áhrifavaldurinn og athafnakonan Tanja Ýr Ástþórsdóttir tók yfir Lundúnaborg.