Móeiður og Hörður saman í níu ár

Móeiður Lárusdóttir og Hörður Björgvin Magnússon eru búin að vera …
Móeiður Lárusdóttir og Hörður Björgvin Magnússon eru búin að vera saman í níu ár. Skjáskot/Instagram

Fótboltamaðurinn Hörður Björgvin Magnússon og Móeiður Lárusdóttir fagna níu ára sambandsafmæli sínu í dag. Móeiður sagði frá sambandsafmælinu á Instagram og setti inni fallegt myndband í sögur.

Hörður og Móeiður eiga saman tvær dætur, Matteu Móu og Mörlu Ósk, en Marla litla kom í heiminn nú í byrjun sumars. Parið hefur búið saman um víða veröld en Hörður hefur spilað með liðum á Ítalíu, á Bretlandi og í Rússlandi.

Síðustu fjögur ár hafa þau búið í Moskvu í Rússlandi þar sem hann spilaði með CSKA Mosvku. Fyrirhugaðir eru flutningar hjá vísitölufjölskyldunni til Grikklands en Hörður gerði nýverið samning við gríska úrvalsdeildarliðið Panathinaikos.

skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál