Vont þegar sjálfhverft fólk upphefur sig með góðum málstað

Sigursteinn Másson er gestur Sölva Tryggvasonar í hlaðvarpi hans.
Sigursteinn Másson er gestur Sölva Tryggvasonar í hlaðvarpi hans.

Sigursteinn Másson fjölmiðlamaður segir sannleikann alltaf betri en kjaftasögur. Sigursteinn, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar vinnur nú að enn einni seríunni af Sönnum íslenskum sakamálum sem hafa notið mikilla vinsælda. 

„Málin sem er verið að fjalla um eru auðvitað oft viðkvæm gagnvart aðstandendum og fleiri aðilum. Maður verður oft að stíga varlega til jarðar og sýna nærgætni. En þegar fólk spyr mig hvort Ísland sé of lítið til að gera svona sakamálaþætti svara ég því að Ísland sé of lítið til að gera ekki svona þætti. Þetta er samfélag kjaftasagna og sakamálin fá oft þannig afgreiðslu að það verða til hugmyndir og sögusagnir sem fara á milli manna og á endanum er sagan orðin kolröng. Hlutverk mitt sem sögumanns er að segja satt og rétt frá og tilgreina staðreyndir, hversu erfiðar sem þær kunna að vera. En á endanum er sannleikurinn alltaf auðveldari en lygin. Lykilatriðið er auðvitað að vanda mikið til verka. En auðvitað eru sum af þessum málum mjög erfið og sár fyrir aðstandendur fórnarlamba og ég finn það oft þegar ég vinn að þáttunum.”

Sigursteinn gerði á sínum tíma heimildarmynd um Geirfinnsmálið, sem gjörbreytti afstöðu almennings í málinu. Hann segist fljótt hafa séð að málið væri mjög furðulega vaxið. 

„Ég var eins og allir aðrir upphaflega með þá hugmynd að sakborningarnir hafi gert eitthvað úr því að þau voru dæmd og játuðu. En svo bara sá ég á fyrstu sólarhringunum eftir að ég fór að skoða gögnin að það stóð ekki steinn yfir steini. Gögn voru horfin, sumir hlutir stemmdu engan vegin og gögn úr yfirheyrslunum voru einhver almenn samantekt. Hálf A4 blaðsíða eftir sex klukkutíma af yfirheyrslum. Yfirvöld bjuggu til ákveðna tilgátu í upphafi og síðan vafði það upp á sig. Það átti aldrei að blanda Erlu Bolladóttur í þetta, en síðan heldur atburðarrásin áfram og það er eins og menn hafi ekki getað snúið við. Svo eru þeir sem stýra rannsókninni komnir á algjörar villigötur, en aldrei er stoppað. Þetta er miklu alvarlegra en svo að það sé hægt að afgreiða þetta sem mistök,“ segir Sigursteinn og heldur áfram:

„Það er alveg öruggt að þetta er ekki eina tilfellið þar sem rannsókn í sakamáli hefur farið svona. Þegar þú ert kominn langt í vegferð sem er röng verður alltaf erfiðara og erfiðara að viðurkenna mistök. Þess í stað er reynt að breiða yfir eða finna útgönguleið, sem er grafalvarlegt. Þess vegna er mjög mikilvægt að læra af málum eins og þessu svo að þetta gerist aldrei aftur. Einstaklingar sem hafa örlög fólks í höndum sér geta ekki hegðað sér með þessum hætti.“

Sigursteinn hefur starfað við fjölmiðlun í meira en tvo áratugi. Hann segir liðsskiptingu í umræðu og skoðunum orðið mikið vandamál. Þá stundi ákveðinn hópur fólks að upphefja sjálfan sig með góðum málstað. 

„Ég upplifi það mjög sterkt að það séu orðnar liðsskiptingar í mjög mörgum málum og hlutirnir málaðir upp svarthvítt. Ef þú ert ekki í mínu liði, þá ert þú á móti mér. Það er leiðinlegt að horfa upp á fólk sem tekur góðan málstað og tekur hann allt of langt til að upphefja sjálft sig. Þetta er egóismi þar sem hópurinn er með sínar staðreyndir, sem eru jafnvel langt frá raunveruleikanum. En svo á að pína aðra til að vera sammála. Þessi pólarisering er að verða eitt stærsta vandamálið í samfélaginu okkar og annars staðar á vesturlöndum.“

Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál