Nicole Kidman er kannski fimmtug en það stoppar hana ekki í að klæðast síðum bleikum kjólum þegar hún hefur sig til. Kidman stal senunni í mjög bleikum kjól frá Valentino á Critic Choice-verðlaunahátíðinni.
Kidman var ekki sú eina sem valdi kjól í lit fyrir hátíðina en það mátti sjá leikkonurnar Leslie Mann og Allison Janney í fallega litum kjólum.
Margar konur völdu þó hvítan eftir að hafa klæðst svörtu á Golden Globe fyrr í vikunni. Vakti Kate Bosworth athygli í fallegum kjól frá Brock Collection.