Fyrsta snyrtivöruauglýsingin á sextugsaldri

Ferill Lauru Dern er í fullum blóma.
Ferill Lauru Dern er í fullum blóma. AFP

Ferill leikkonunnar Laura Dern hefur gengið í endurnýjun lífdaga síðustu misseri. Dern sem er 51 árs sat fyrir í sinni fyrstu snyrtivöruauglýsingu á dögunum.  

Dern sat fyrir í herferð fyrir ilmvatn frá Kate Spade en Elle greinir frá því að um sé að ræða fyrstu snyrtivöruauglýsinguna sem Dern tekur þátt í. Snyrtivörumerki hafa undanfarið litið í auknum mæli til eldri kvenna þegar kemur að því að auglýsa snyrtivörur. 

Í auglýsingunni er Dern beðin um að senda sjálfri sér ástarbréf. Þar hvetur hún sjálfa sig til þess að slaka aðeins á. „Þetta er í lagi, þú ert að gera það besta sem þú getur.“ 

Laura Dern.
Laura Dern. AFP

Dern lýsti húðumhirðu sinni í viðtali við The New York Times fyrir ári. Þar sagðist hún fara reglulega í andlitsmeðferð, hún notaði síðan rakakrem og rakasprey sem hún notar í flugvélum. Hún játaði einnig að nota ekki of oft sólarvörn.

Hún notar mikinn farða í vinnunni sem leikkona og því farðar hún sig ekki mikið þegar hún á frí. Maskari og varasalvi er þó eitthvað sem hún notar alltar en varasalvann er hún alltaf með í töskunni. 

 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál