Hlébarðamynstur leyfilegt í Hvíta húsinu

Donald og Melania Trump lögðu áherslu á græna litinn þegar …
Donald og Melania Trump lögðu áherslu á græna litinn þegar þau hittu forsætisráðherra Írlands. AFP

Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, klæddist settlegum kjól með hlébarðamynstri í óvenjulegum lit þegar forsætisráðherra Írlands, Leo Varadkar, heimsótti Hvíta húsið á fimmtudaginn. 

Dagur heilags Patriks er um helgina og klæddust Trump-hjónin grænu í tilefni dagsins og í heimsókn forsætisráðherrans. Græni kjóllinn með hlébarðamynstrinu sem forsetafrúin klæddist er frá Brandon Maxwell og kostar um 160 þúsund íslenskar krónur

Það er óvenjulegt að sjá konu eins og forsetafrú Bandaríkjanna í hlébarðamynstri en hún tónaði mynstrið niður með því að velja grænan kjól með mynstrinu. Það glitti þó í glamúrgelluna Melania Trump þar sem Christian Louboutin-hælarnir sem hún var á voru með hefðbundnu snákaskinnsmunstri. 

Melania Trump,Donald Trump og Leo Varadkar.
Melania Trump,Donald Trump og Leo Varadkar. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál