Tískan fer í marga hringi. Um þessar mundir minnir margt í tískunni á Goldie Hawn í Foul Play þar sem hún leikur á eftirminnilegan hátt bókasafnsfræðinginn Gloriu Mundy.
Mundy lifir tiltölulega rólegu lífi. Hún er ekki mikið fyrir spennu, þótt spennan leiti hana uppi í kvikmyndinni. Söguþráður myndarinnar er um hvernig ung kona flækist inn í árás á páfann, þar sem dvergur, albinói og úrræðagóður leigusali koma við sögu.
Goldie Hawn sannfærandi sem Gloria Mundy í Foul Play.
Pinterest.
Asos býður upp á fallegar gleraugnaumgjarðir, en gott er einnig að fara í gleraugnaverslanir í borginni og biðja um útlit bókaormsins.
Pinterest.
Það sem við höfum áhuga á í þessu samhengi, er tískan í kvikmyndinni. En Goldie Hawn er einstaklega fallega klædd í tísku sem minnir á sjöunda áratug síðustu aldar.
Einfaldur silkikjóll og langar perlur er einstakt útlit.
Pinterest.
Fallegur frakki frá Gerard Darel í anda Foul Play-myndarinnar.
Pinterest.
Það sem hafa ber í huga þegar maður ætlar að finna flíkur í þessum anda, er einföld klassísk snið, eitthvað sem bókasafnsfræðingurinn getur notað við hin ýmsu tækifæri. Þægileg efni, mjótt mittið og einföld snið.
Bókasafnsfræðingurinn kann að klæða sig upp á í skyrtu, peysu, með trefil og auðvitað regnhlíf.
Pinterest.
Chloe-peysa fyrir sumarið væri á óskalista bókasafnsfræðingsins að okkar mati.
Pinterest.
Góður ullarjakki í skjóli blóma. Himneskir litir.
Fallegur kjóll frá Uni Qlo. Það er einstaklega margt frá þessari japönsku verslunarkeðju í anda Gloriu Mundy. Dýrðlegar peysur, skyrtur og pils í einföldum sniðum.
Pinterest.
Fallegur jakki í anda myndarinnar frá H&M.
Pinterest