Tennisstjarnan Serena Williams lætur ekki háa hæla eyðileggja fyrir sér gott partí. Williams var í strigaskóm við síðkjólinn sem hún klæddist í brúðkaupsveislu Harry og Meghan á laugardagskvöldið.
Williams mætti í bleikum hælaskóm við bleika kjólinn frá Versace sem hún klæddist þegar hún mætti til kirkjunni ásamt eiginmanni sínum Alexis Ohanian. Seinna um kvöldið skipti hún yfir í síðkjól frá Valentino.
Kjóllinn var það síður að hún gat falið strigaskóna undir kjólnum. Engin tók þannig eftir strigaskónum en Williams greindi frá því á Instagram að hún gengi oft í strigaskóm undir síðkjóla. Þetta var reyndar ekki fyrsta skipti sem Williams mætti í strigaskóm í brúðkaup en hún klæddist strigaskóm í sínu eigin brúðkaupi fyrir áramót.
Williams gat því dansað út nóttina í Frogmore House í strigaskónunum án þess að finna til. Tennisstjarnan er sögð hafa unnið bjór borðtennis í veislunni um kvöldið og komu þá strigaskórnir sér eflaust vel.