Hátískan á tískupöllunum í París er engri lík. Tískuhúsið Valentino sýndi línu sem var einstaklega falleg. Hárið er stórt og litirnir dásamlegir.
Á heimasíðu Valentino má sjá línuna sem sýnd var í París 4. júlí. Eins var gaman að fylgjast með sýningunni af samfélagsmiðlun. En nú geta fylgjendur séð það nýjasta í tísku beint af pöllunum.
Það sem vakti athygli við sýninguna var að stóra hárið á sumum fyrirsætunum var í anda hárgreiðslu Chaterine Deneuve úr Belle De Jour.
Fatnaðurinn var fallega gylltur, rauður, blár og hvítur svo eitthvað sé nefnt. Athygli vakti bleikur kjóll með grænum skóm. Rautt dress með bláum skóm. Háar ljósar buxur og falleg samsetning á ólíkum efnum, litum og formum.
Fatnaðurinn minnti á gamla tíma en útfærslan var skemmtilega nútímaleg.