Cristina Ehrlich hefur lengi verið stílisti spænsku leikkonunnar Penelope Cruz. Ehrlich fylgist vel með því sem er að gerast á tískupöllunum og kom auga á þrjá kjóla á tískusýningu Giambattista Valli í París í vikunni sem hún var sérstaklega hrifin af.
Ehrlich greindi frá því í viðtali við Hollywood Reporter hvaða þrír kjólar af sýningunni væri líklegt að einhver af hennar kúnnum myndi klæðast en hún velur ekki bara föt á Cruz heldur vinnur líka með Lauru Dern og Gretu Gerwig.