Reglulega vekja ákveðnar flíkur mikla athygli fyrir eitthvað allt annað en að vera þær flottustu á markaðnum. Reyndar eru gallastuttbuxurnar frá CIE Denim ekki beint ljótar en þær eru vissulega öðruvísi.
Þó svo að það sé ekki endilega óþægilegra að klæðast gallastuttbuxunum frekar en öðrum er aðeins óþægilegra að horfa á þær. Stuttbuxurnar virðast nefnilega vera á hvolfi, það er buxnastrengurinn er á lærunum og rassvasarnir snúa niður. Á mittinu er ekkert sem bendir til þess að um mittið á buxunum sé að ræða eins og á venjulegum gallabuxum.
Stuttbuxurnar heita Nancy en merkið framleiðir einnig svipaðar gallastuttbuxur sem eru kallaðar El en stuttbuxurnar er nefndar eftir persónum í Netflix-þáttunum Stranger Things. Einnig hafa verið framleiddar gallabuxur í fullri lengd út frá sömu hugmyndafræðinni sem kallaðar eru Will, Mike og Lucas.