Innblástur frá einni konu til annarrar

Sissy Spacek, Nina Simone og Saoirse Ronan.
Sissy Spacek, Nina Simone og Saoirse Ronan.

Fyrsta ilmvatn Calvin Klein í þrettán ár ber heitið Women og er jafnframt það fyrsta undir stjórn Raf Simons sem listræns stjórnanda tískuhússins.

„Með þessu ilmvatni vildum við leggja áherslu á fleirtölu og kynningarherferð ilmvatnsins sýnir konur sem vilja skapa sitt eigið auðkenni en einnig styðja og ryðja brautina fyrir konur sem á eftir þeim koma,“ segir Raf Simons og segir jafnframt að Calvin Klein Women sæki innblástur í styrk og innblástur sem færist frá einni konu yfir til annarrar; þar sem fleirtala sameinast einstaklingshyggjunni. Ilmvatnið, ilmvatnsglasið og herferðin er allt hannað af konum.

Calvin Klein Women er fyrsta ilmvatn tískuhússins í þrettán ár.
Calvin Klein Women er fyrsta ilmvatn tískuhússins í þrettán ár.

Andlit herferðarinnar eru leikkonurnar Lupita Nyong'o og Saoirse Ronan en þær eru þekktar fyrir hæfileika sína, sköpunarmátt og sterkan karakter. Í auglýsingunum má sjá andlit þeirra í lit ásamt myndum af tveimur konum í svarthvítu sem hafa veitt þeim innblástur í gegnum tíðina. Nyong'o valdi söngkonuna Eartha Kitt og leikkonuna Katharine Hepburn en Ronan valdi leikkonuna Sissy Spacek og söngkonuna og baráttukonuna Ninu Simone.

Ilmurinn sjálfur er viðarkenndur blómailmur sem er sérlega fágaður. Þrjú innihaldsefni standa upp úr, en það eru eucalyptus, appelsínublóm og sedrusviður frá Alaska. Þessi hráefni blandast svo svörtum pipar, sítrónu, magnolíu og jasmín en með þessu sameinast styrkur viðkvæmni og ferskleiki sameinast munúð. Ilmurinn er fínstilltur og inniheldur hágæða hráefni sem standast samanburð við einstaka ilmvatnsframleiðendur á borð við Byredo og Le Labo en hágæða ilmvötn frá minni ilmvatnsframleiðendum hafa sjaldan verið vinsælli en nú.

Á samfélagsmiðlum er herferð í gangi undir myllumerkinu #IAMWOMEN þar sem konur birta myndir af þeim konum sem hafa veitt þeim innblástur í lífinu.

Eartha Kitt, Katharine Hepburn og Lupita Nyong’o.
Eartha Kitt, Katharine Hepburn og Lupita Nyong’o.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál