Hvernig gerir Dita Von Teese þetta?

Dita Von Teese er þekkt út um allan heim fyrir …
Dita Von Teese er þekkt út um allan heim fyrir einstakt útlit og skemmtilega hugsun. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Dita Von Teese er þekkt víða um heiminn fyrir að vera frumkvöðull, dansari, undirfatahönnuður, fyrirsæta, söngkona og fleira. 

Von Teese verður 46 ára á þessu ári og er í frábæru formi. Hún er hvergi nærri hætt að finna nýjar leiðir inn á markaðinn með hugviti sínu. Hún gaf út 400 síðna bók um útlit og fleira sem heitir „Your Beauty Mark“. 

Hún byrjar hvern morgun á grænum orkudrykk. Hún stundaði pilates í mörg ár en hefur nú lagt stund á crossfit um tíma. Hún trúir á aga þegar kemur að mataræði og vellíðan almennt. Hún missir sig aldrei í mat eða drykk. Hún passar verulega upp á húðina sem er ljós og viðkvæm. Notar góða rakagjafa, sólvörn og hatt þegar hún þarf. Hún tekur vítamín á hverjum morgni og trúir því að hreyfing og hollt mataræði skipti öllu máli þegar kemur að heilsunni. Punkturinn yfir i-ið er síðan rauði varaliturinn sem hún notar daglega. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál